Síða 1 af 1

Val á Mp3 spilara

Sent: Mán 28. Jún 2004 23:25
af Tesli
Ég er búinn að vera að leita mér að Mp3 spilara í heilann mánuð og hef verið einu skrefi frá því að kaupa nokkra, en hætt við á síðustu stundu því alltaf finn ég betri og betri spilara og hætti síðan við þá þegar ég sé léleg review og fleira. Er í allgjörum vandræðum að velja og lendi alltaf á byrjunarreit aftur því allir spilarar hafa sína kosti og galla sem ég get ekki valið á milli. Ég ætla að tala um nokkra spilara sem að ég hef séð og hjálpiði mér síðan að velja.
Spurning líka um val á milli Flashspilara og harddrive spilarar, flash spilarinn eyðir minna batterý, er sterkari og minni en með litla geymslugetu, Hard drife er “aumari” lítil batterý ending en stórt geymslupláss og betra viðmót.

Mun nota spilarann í vinnunni og í gymminu, hlusta mikið á audiobooks.

Það sem ég vil gjarnan að spilarinn hafi: 1gb+ pláss
Playlist support
Battery endingu 10kst+
Léttur
Jog proof
Gott viðmót
Auðveldur í notkun
Sterkur spilari
Fm útvarp og upptaka

Ipod 15gíg

Gallar:
LÉLEG battery ending (aðeins 4-6 tímar) http://www.ipodhacks.com/article.php?sid=158

Vandræði með fæla stærri en 25min, eyðir þá battery 3falt fljótar (vandræði með audiobooks)
Ónýtur við minnsta hnjask

Styrkleiki:
Frábært viðmót

Verð 27.900 í fríhöfninni

Iriver ifp899

Gallar:
Mjög dýr
Lítið pláss

Styrkleiki:
Lítill
Langt batterý líf
Fm útvarp og upptaka

Verð 39.000


Digitalway FY200 512MB PLUS

Gallar:
LÍTIÐ pláss
Lélegt viðmót
Ekki playlist support

Styrkleiki:
Lítill
Langt batterý líf
Fm útvarp og upptaka

Verð 32.000

iRiver iHP-120 20 GB

Gallar:
Pínu stór, en samt svipaður og ipod

Styrkleiki:
Góð batterý ending
Stórt pláss
Fm útvarp og upptaka
Fínt viðmót

Verð 33.000

sjáið þessa alla spilara hér http://www.mymusic.dk/shop/

Það eru líka fleiri spilarar sem ég tjékkaði á en nenni ekki að setja hér td Hi-md minidisk og mp3ferðageislaspilarar, ef þið vitið um einhverja betri segið mér það þá. Mér líst langbest á iRiver iHP-120 20 GB því hann er með alla eiginleika sem ég þarf og ég er eiginlega ákveðinn í augnablikinu að kaupa hann, en ákvað að fá kannski álit hjá ykkur fyrst. Endilega segið mér frá ykkar reynslu af svipuðum spilurum.

Ef eitthvað er vitlaust sem ég hef sagt, leiðréttiði mig þá en ekki vera með leiðindi. :D

Sent: Þri 29. Jún 2004 00:03
af everdark
ipod viðkvæmur?

er alltaf að missa minn, sér ekki á honum :p

Sent: Þri 29. Jún 2004 00:23
af fallen
Linkarnir eru allir alveg eins. :roll:

Sent: Þri 29. Jún 2004 01:38
af ICM
bíða eftir Nomad Zen Touch eins og ég

Sent: Þri 29. Jún 2004 01:52
af Demon
IceCaveman skrifaði:bíða eftir Nomad Zen Touch eins og ég


Er eitthvað sem gerir hann betri en Ipod t.d.?

Sent: Þri 29. Jún 2004 01:54
af ICM
Demon skrifaði:
IceCaveman skrifaði:bíða eftir Nomad Zen Touch eins og ég


Er eitthvað sem gerir hann betri en Ipod t.d.?

Sama og alla Creative spilara, betri hljómgæði, betri batterý endingu, betri kaup, auðveldara að skipta um batterý, ódýr fjarstýring og FM útvarp+upptakari... allt að 20tíma batterý ending og hann verður með "touch" stýringu

Sent: Þri 29. Jún 2004 01:55
af ICM

Sent: Þri 29. Jún 2004 15:16
af Tesli
En er Zen touch með direct Fm recording, Iriver h120 er td með fm recording en ekki direct. Bara hægt að taka upp í gegnum line in, það er ég ekki að fíla. :?

Sent: Þri 29. Jún 2004 19:24
af Demon
IceCaveman skrifaði:
Demon skrifaði:
IceCaveman skrifaði:bíða eftir Nomad Zen Touch eins og ég


Er eitthvað sem gerir hann betri en Ipod t.d.?

Sama og alla Creative spilara, betri hljómgæði, betri batterý endingu, betri kaup, auðveldara að skipta um batterý, ódýr fjarstýring og FM útvarp+upptakari... allt að 20tíma batterý ending og hann verður með "touch" stýringu


Hljómar vel, that is betri hljómgæði og betra batterý (hitt skiptir ekki máli fyrir mér).
En stóra spurningin er kannski hvort þessi gripur fáist í fríhöfninni þegar að kemur.
Því jú verðmunur hér og úti eða í fríhöfninni er sjúkur.

Sent: Þri 29. Jún 2004 19:59
af demigod
hvenar kemur þessi gripur í búðir ?

Sent: Sun 25. Júl 2004 18:52
af tomaz
Allt upp að 24 klst battery ending

Sent: Sun 25. Júl 2004 18:56
af tomaz
Ég ætla að kaupa mér 1 stk af þessari græju þegar ég fer til útlanda eftir c.a. mán .. kostar um 19k í USA Meira um þennan spilara hér :)

Sent: Sun 25. Júl 2004 19:24
af ICM
tomaz mundu að þú getur keypt fjarstýringu fyrir þetta og þú þarft þess ef þú vilt FM útvarp fyrir þetta, en þó þú gerir það þá fer kostnaðurinn ekki yfir sambærilegan iPod.

Sent: Sun 25. Júl 2004 19:30
af ICM

Sent: Sun 25. Júl 2004 20:36
af tomaz
ok töff , fæ mér 1 stk svona og spilarann .. samkvæmt dollaranum í dag ætti þetta að kosta um 21299 kr :)