Síða 1 af 1
Nýr turn - álit
Sent: Fim 09. Feb 2012 22:42
af KermitTheFrog
Jæja, nú er maður að detta í gírinn aftur eftir smá hlé og langar að setja saman eina góða mulningsvél og nota gömlu bara sem mediaserver eða eitthvað sniðugt. Ég renndi snögglega yfir þetta og tíndi saman í list hér að neðan. Vinsamlegast tjáið álit ykkar á valinu og endilega bendið mér á breytingar svo maður fái nú sem mest fyrir peninginn.
Antec P280Thermaltake Toughpower Grand 750WGigabyte HD6950 1GB GDDR5120GiB Mushkin Chronos SSDNoctua NH-D14Mushkin Blackline 8GB 1600MHz CL9AMD setup:
Gigabyte AM3 GA-990FXA-UD5AM3+ Bulldozer X6 FX-6100Intel setup:
Gigabyte S1155 Z68XP-UD3Intel Core i5 2500KÉg þarf sennilega enga frekari diska með þar sem ég nota gömlu tölvuna bara undir harða diska.
Re: Nýr turn - álit
Sent: Fim 09. Feb 2012 22:52
af AncientGod
Ekkert skjákort ?
Re: Nýr turn - álit
Sent: Fim 09. Feb 2012 22:53
af Magneto
lítur vel út, en afhverju ekki að fara bara í 2500K ?
en á ekkert að fá sér nýtt skjákort líka ?
Gangi þér vel

Re: Nýr turn - álit
Sent: Fim 09. Feb 2012 22:55
af KermitTheFrog
Vá hvað ég steingleymdi skjákorti hahaha.
Og mig langar að prufa AMD núna. Þeir virðast líka vera ódýrari en Intel.
Edit: skellti skjákorti með.
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 00:50
af KermitTheFrog
Eftir nánari skoðun sýnist mér 2500k vera að skora remarkably hátt svo það er spurning að halda sig við Intel.
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 02:15
af Frost
KermitTheFrog skrifaði:Eftir nánari skoðun sýnist mér 2500k vera að skora remarkably hátt svo það er spurning að halda sig við Intel.
2500k er málið

Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 19:21
af KermitTheFrog
Ansans Intel að vera að læsa multiplierunum.
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 19:43
af worghal
af hverju ekki blackline með intel setupinu ?
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 19:48
af AciD_RaiN
worghal skrifaði:af hverju ekki blackline með intel setupinu ?
x2

Ég bara þorði ekki að minnast á það ef það væri eitthvað sem væri að hindra það í móðurborðinu en annars myndi ég hiklaust fara í Intel pakkann. Setti upp Bulldozer octo í fél hjá einum um daginn og ég er bara ekki jafn sáttur og maður bjóst við...
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 19:51
af Klaufi
worghal skrifaði:af hverju ekki blackline með intel setupinu ?
Eru þau ekki 1.65V?
Var ekki alltaf eitthvað rifrildi á milli SB og minnis með yfir 1.5V spennu?
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 21:15
af KermitTheFrog
Blackline eru öll 1600MHz og mér sýnist 1155 borðin ekki taka meira en 1333MHz :/
Samt correct me if im wrong, gæti verið að ég sé að misskilja.
Samt ein spurning, afhverju er verið að framleiða borð með 4xS-ATA II og 4xS-ATA III þegar S-ATA II er backwards compatible? Eins með USB 2.0 og 3.0...
edit: auðvitað meina ég S-ATA III er backwards....
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 21:20
af AciD_RaiN
KermitTheFrog skrifaði:Blackline eru öll 1600MHz og mér sýnist 1155 borðin ekki taka meira en 1333MHz :/
Ertu að tala um öll 1155 borð eða? Ég var að fá mér 1155 borð sem tekur alveg vel 1866 minnin sem ég er að fá mér... stendur allavegana í leiðavísinum

Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 21:24
af KermitTheFrog
Kannski eru það bara borðin sem ég er búinn að vera að skoða en þau eru öll gefin upp fyrir DDR3 1333MHz...
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 21:27
af mundivalur
Bara minni undir 1.50v
Support for DDR3 2133/1866/1600/1333/1066 MHz memory modules
http://www.gigabyte.us/products/product ... id=3978#sp"Samt ein spurning, afhverju er verið að framleiða borð með 4xS-ATA II og 4xS-ATA III þegar S-ATA II er backwards compatible? Eins með USB 2.0 og 3.0..."
nei þetta gæti verið allt sata 3 eða usb 3!! eða kanski er einhver búnaður sem er ekki að fíla það

Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 21:29
af worghal
KermitTheFrog skrifaði:Blackline eru öll 1600MHz og mér sýnist 1155 borðin ekki taka meira en 1333MHz :/
Samt correct me if im wrong, gæti verið að ég sé að misskilja.
Samt ein spurning, afhverju er verið að framleiða borð með 4xS-ATA II og 4xS-ATA III þegar S-ATA II er backwards compatible? Eins með USB 2.0 og 3.0...
samkvæmt gigabyte síðunni þá á þetta borð að styðja upp að 2133Mhz minni.
þannig að
Mushkin 8GB DDR3 1600MHz væri helvíti flott í þetta setup.
og já, það var eitthvað dæmi með 1.65v minni en ég man ekki allveg málið með það.
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 22:06
af Klemmi
P67 og Z68 borðin eiga ekki í nokkru vandamáli með að keyra 1600MHz minni, H61 hins vegar styður ekki meir en 1333MHz.
Ég hef sjálfur aldrei lent í vandræðum með 1.65V Mushkin minni í nokkru LGA1155 borði, en ætla þó ekki að útiloka að það geti komið upp vandamál.
@Kermit, það er því gamla tæknin og controllerarnir fyrir hana eru miklu ódýrari. Fæstir nota meira en 2x SSD diska svo það er í raun engin ástæða fyrir meðal-manninn til að hafa meira en 2x SATA3 port, þar sem SSD diskar eru þeir einu sem komast nálægt því að nota SATA3 hraðann, SATA2 er miklu meira en nóg fyrir alla venjulega HDD í dag.
Sama gildir með USB3.0, móðurborðsframleiðendur eru að kaupa sér USB3.0 controllera og skella þeim á borðin hjá sér sem kostar peninga. Einu tækin svo ég viti til sem nota USB3.0 hraðann eru flakkarar og minnislyklar, önnur USB tæki s.s. lyklaborð, mýs, prentarar o.s.frv. þurfa ekki þennan hraða.
Það er þó einn stór kostur aukalega sem USB3.0 hefur, en það getur einnig flutt talsvert meira afl, sem gerir það að betri kandidát fyrir alls kyns hleðslutæki fyrir síma og annað.
Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 22:54
af KermitTheFrog
Jæja, ég set þá Blackline minni með

Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 23:19
af AciD_RaiN
KermitTheFrog skrifaði:Jæja, ég set þá Blackline minni með


Líst vel á þig

Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 23:44
af mundivalur
Hvað er langt í uppfærslu ? mín minni verða á lausu eftir 7-10daga

Re: Nýr turn - álit
Sent: Lau 11. Feb 2012 23:46
af KermitTheFrog
Mánuður eða tveir kannski. Þarf að sjá til hversu miklu ég get spanderað í þetta.