Síða 1 af 1

hávaði í 5850 skjákorti

Sent: Þri 07. Feb 2012 17:17
af J1nX
ég var að flytja um daginn, og þegar ég tengdi tölvuna í nýju íbúðinni heyrist þessi yndislega mikli hávaði úr viftunni á skjákortinu, er búinn að reyna að rykhreinsa eins og ég get en get það takmarkað útaf þessari "hlíf" sem er á skjákortinu.. er einhver leið til að ná henni af? ég sá engar skrúfur eða neitt þegar ég var að skoða þetta

tölvan virkar btw alveg eðlilega, bara þessi yndislegi hávaði frá skjákortinu

Re: hávaði í 5850 skjákorti

Sent: Þri 07. Feb 2012 19:03
af Bioeight
Maður þarf oft að losa allt heila klabbið af til að ná að þrífa svona kælingar, þess vegna er ég miklu hrifnari af opnum kælingum eins og MSI Cyclone t.d.
Það ættu að vera skrúfur aftaná til að losa þetta af, fínt kannski að skipta um kælikrem í leiðinni ef það þarf að losa kæliplötuna af.
Hvaða kort nákvæmlega er þetta sem þú ert með?

Re: hávaði í 5850 skjákorti

Sent: Mán 27. Feb 2012 15:52
af J1nX
þetta er radeon 5850 sapphire eikkað dæmi :P

Re: hávaði í 5850 skjákorti

Sent: Mán 27. Feb 2012 16:17
af AciD_RaiN
J1nX skrifaði:þetta er radeon 5850 sapphire eikkað dæmi :P

Áttu ekki link á mynd eða eitthvað þannig? Það er líka ekkert mál að taka það í sundur og alltaf gott að gera það af og til og skipta um hitaleiðandi krem í leiðinni ;)

Re: hávaði í 5850 skjákorti

Sent: Mán 27. Feb 2012 16:31
af J1nX
ég fer í það um mánaðarmótin bara í að skrúfa hlífina af og hreinsa, og kaupa nýtt krem til að setja á.. ég hlýt að meika þennan hávaða í nokkra daga :P

má læsa þessu :P

Re: hávaði í 5850 skjákorti

Sent: Mán 27. Feb 2012 16:43
af Senko
Getur breytt hradanum a viftuni a catalyst control center i millitidini.

Re: hávaði í 5850 skjákorti

Sent: Fös 02. Mar 2012 21:00
af J1nX
jæja komst að því í dag að legan á viftunni er ónýt eða eikkað álíka samkvæmt öðlingnum honum Ella í tölvutækni sem skoðaði kortið fyrir mig.. versta er að það er ekki til nýtt svona viftuthing hjá þeim né í tölvuvirkni.. þannig nú spyr ég ykkur notendur kærir.. ekki lumið þið á ónýtu 5850 korti sem er með heilli viftu? ef svo er, er ég alveg til í að kaupa það af ykkur :D

edit : eða ef þið lumið á einu svona: http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&f ... k%E6lingar og viljið selja mér? :D