Síða 1 af 1

Hvenær kemur X800XT?

Sent: Sun 27. Jún 2004 03:45
af machinehead
Okay, það eru örugglega búnir að koma fullt af póstum um þetta sama efni en ég ætla samt að spurja...

Hvenær kemur X800XT og hvað kemur það til með að kosta, ég er varla að nenna að bíða eftir því og er að pæla í því að skella mér á PowerColor X800PRO Platinum Edition Limited Assassin Edition á 49.800.- hjá start.is. 50k króna kort getur varla verið lélegt, á þetta kort ekki eftir að ganga smooth í hl-2 og þeim leikjum sem eiga eftir að koma út á næstunni?

Sent: Sun 27. Jún 2004 04:11
af fallen
Jú, hella smooth ef þú ert með góða vél samhliða því.
Annars hef ég ekki hugmynd um hvenær XT kemur, ég mun a.m.k. bíða eftir því :>

Sent: Sun 27. Jún 2004 04:20
af Arnar
XT á að koma einhvern tíman í júlí.

Það mun eflaust kosta um 60þús

Sent: Sun 27. Jún 2004 10:23
af Tristan
Ég gat ekki beðið og sé svo sem ekkert eftir því. :wink:
Fékk mér Powercolor X800 og það svínvirkar.

Er að fá 9500 stig í 3dmark03 og get spilað alla núverandi leiki mína í hárri upplausn með hámarksgæðum.

Sent: Mán 28. Jún 2004 01:39
af machinehead
Þá skellir maður sér bara á X800Pro, er ekki að fara að eyða meira en 50k í skjákort! 9500 í 3d dæminu þarna, er það hátt score?

Sent: Mán 28. Jún 2004 01:45
af Pectorian
Ég hefði allavega ekkert á móti því að vara með þetta skor, ég ætla ekki einu sinni að segja hvað vélin mín er að fá :cry:

Sent: Mán 28. Jún 2004 15:43
af Stebbi_Johannsson
MachineHead ég mæli stórlega með að þú býður. Það yrði svakalega fúlt ef að XT myndi síðan "owna" Pro og þú værir búinn að fá þér það. Annars er það vitlaust að vera tilbúinn að til að eyða 50k í kort en ekki 60-65k :?

Sent: Mán 28. Jún 2004 16:53
af machinehead
Fer X800XT ekki á 70k, það er nú frekar mikið meira heldur er 50k fyrir Pro... en hvað með nVidia6800, er það ekki á 60k?

Sent: Mán 28. Jún 2004 22:06
af DaRKSTaR
machinehead skrifaði:Þá skellir maður sér bara á X800Pro, er ekki að fara að eyða meira en 50k í skjákort! 9500 í 3d dæminu þarna, er það hátt score?


9500 stig.. nei.. xt kortið fer yfir 12þús stig.

Sent: Mán 28. Jún 2004 22:49
af machinehead
DaRKSTaR skrifaði:
machinehead skrifaði:Þá skellir maður sér bara á X800Pro, er ekki að fara að eyða meira en 50k í skjákort! 9500 í 3d dæminu þarna, er það hátt score?


9500 stig.. nei.. xt kortið fer yfir 12þús stig.



Það er kannski vegna þess að XT er betra en einnig dýrara, ég fæ mér Pro því það er ekki séns að ég eyði miera en 50k í skjákort, þetta er nú meira en andskoti gott kort og mikið betra en þau sem eru á markaðinum í dag

Sent: Þri 29. Jún 2004 00:24
af Steini
Ég myndi giska á að xt færi í 60 þúsund, geforce6800 ultra kostar 60k í 24/7...

Sent: Þri 29. Jún 2004 01:19
af Dannir
Ég bíð nú bara eftir 6800gt sem er "midrange" kortið frá Nvidia.

http://www.guru3d.com/article/Videocards/135/