Síða 1 af 1

Uppfærslan :P

Sent: Fös 25. Jún 2004 15:08
af Andri Fannar
Örri: Athlon 2500XP Barton hjá Att - 7.750Kr - Ódýr og góður
Kælivifta: Coolermaster (CP5-8JD1F-0L) hjá Att - 1.950Kr
Fín vifta
Móðurborð : Shuttle AN35/N Ultra hjá Tölvuvirkni - 7.852Kr (staðgreitt)
Gott og ódýrt :P
Minni: 2X Corsair ValueSelect 256MB DDR400 hjá Att - 11.700Kr
Gott minni :P
HDD:160 GB Maxtor 8mb buffer 7200rpm hjá Att - 10.950Kr
Ódyr diskur – Ég á líka annann 160 og 1x 20 GB
Skjákort: Chaintech GeForce FX5200hjá Att - 6.150Kr
Fínt skjákort fyrir lítinn $$
Geisladrif: DVD Skrifari og cd drif hjá Att – 11.450Kr
Fínt drif
Kassi : Töff kassi og kælir vel ábyggilega :D - 10.000kr
Lyklaborð : Eikkað plain - 800kr
Mús : MX510 : MX510 – 5.500kr

ALLS = 74.102kr. Held ég :P



______________________________________________

Hvernig líst ykkur á þetta , er þetta ekki fínn pakki og ódýr og allt það ?

Sent: Fös 25. Jún 2004 15:16
af MezzUp
mér líst ágætlega á þessa vél
núna eiga samt örugglega einhverjir eftir að koma og segja þér að þú gætir fengið betra skjákort skjákort fyrir aðeins meiri pening og soldið öflugri örgjörva fyrir smá auka og....... og áður en þú veist af er þetta 120 þús kr. pakki :)

ps. enginn skjár?

Sent: Fös 25. Jún 2004 15:19
af fallen
FX5200 er rusl, fáðu þér frekar Voodoo II.

Sent: Fös 25. Jún 2004 15:21
af Andri Fannar
heheheh já eins og með gaurinn sem var þvílíkt ánægður með vélina sína og svo bara ; annað skjákort balalalal en hvað er Voodoo ruglið hvar fæ ég það og hvað kostar það og allt ? :D :P

Sent: Fös 25. Jún 2004 15:25
af fallen
:roll:

Sent: Fös 25. Jún 2004 17:14
af wICE_man
Mjög vel valin uppfærsla að öllu leyti, það er örugglega erfitt að smíða betri tölvu fyrir þennan pening.

Þetta ákveðna skjákort er sennilega með þeim betri sem þú færð undir 10Þús kallinum, það er orðið erfitt fyrir meðaljóninn að greina milli sorp korta og góðra, sérstaklega fyrir ódýrari skjákort.

Ég myndi nú samt fá mér þetta lykklaborð:

http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view&flo=product&id_top=27&id_sub=783&topl=11&page=1&viewsing=ok&head_topnav=KEY_CH_KBP0108

Sent: Fös 25. Jún 2004 17:57
af MezzUp
ég á bara einfalt lyklaborð með reyndar nokkrum flýtitökkum, en nota þá aldrei

Sent: Fös 25. Jún 2004 17:58
af fallen


GWAH! ég HATA lyklaborð með þessum litla enter takka (Usa style?)

Ég er með Logitech Internet Navigator SE, hefur virkað mjög vel hingað til amk.

Sent: Fös 25. Jún 2004 22:33
af Cicero
sammála fallen..
þessir litlu enter takkar eru frekar leiðinlegir :P

Sent: Lau 26. Jún 2004 00:28
af Steini
Ok wtf ég er með nákvæmlega eins lyklaborð sem ég keypti í tölvuvirkni og það er með venjulegum enter takka, samt allt annað eins á því

Sent: Lau 26. Jún 2004 12:02
af wICE_man
Þetta er amerísk mynd en íslenska lykklaborðið er með venjulegum takka að sjálfsögðu.

Sent: Lau 26. Jún 2004 15:51
af fallen
Vinur minn er með svona svipað, með litlum enter takka, ömurlegt að skrifa á þetta.

Sent: Lau 26. Jún 2004 16:14
af Demon
Fallen skrifaði:Vinur minn er með svona svipað, með litlum enter takka, ömurlegt að skrifa á þetta.

Ég er með eitt svona sjálfur
Var mjög pirrandi, en eftir að maður vandiist því hætti það að vera vandamál.

Sent: Sun 27. Jún 2004 20:31
af ErectuZ
Ég er líka með þetta lyklaborð, keypt af Tölvuvirkni líka. Þetta er með venjulegum, stórum, íslenskum enter takka. Eins vandamálið er að ryk sést vel á þessu.

Sent: Mán 28. Jún 2004 15:28
af Andri Fannar
okey , en væri nookkuð mikið mál að setja þetta saman ? :oops:

Sent: Mán 28. Jún 2004 16:21
af fallen
Ekki ef þú veist hvað þú ert að gera, annars er ekki mikið mál að nálgast leiðbeiningar sem útskýra þetta fyrir manni.