Síða 1 af 1
Nýju Celeron örrarnir koma á óvart!
Sent: Fim 24. Jún 2004 20:01
af wICE_man
Nú eru Celeron D örgjörvarnir komnir út og viti menn, þeir eru ekki rusl eins og fyrirrennari sinn. Anandtech er með góða úttekt á honum, þar kemur í ljós að 2.8GHz Celeron D er að afkasta á við AthlonXP 2600+ í mörgum tilfellum, sér í lagi leikjum, hljóðvinnslu og þrívíddarvinnslu.
Þeir eru að vísu ennþá dýrari en Athlon örrarnir en bilið hefur minkað bæði í verði og afköstum, þá er bara að vona að Intel lækki verðin enn frekar og hver veit nema að þetta verði næsti draumur yfirklukkara

Sent: Lau 26. Jún 2004 00:15
af Steini
Hvað er maður að tala um í verði fyrir 2.8 ghz? gamli kostar eitthvað í kringum 8 þúsund er það ekki
Sent: Lau 26. Jún 2004 12:00
af wICE_man
Það verður um 13þús til að byrja með en sá gamli er ódýrast á 12.350kr.
Sent: Þri 29. Jún 2004 18:37
af ganjha
Sent: Þri 29. Jún 2004 20:11
af gnarr
hvað er mikið cache á þeim? það er verið að gera móðurborð fyrir 775, byggt á 875, svo það verður enginn 10% lás á því. það sem er mest að koma í veg fyrir að það sé hægt að overclocka prescottinn mikið er allt þetta chache. því meira cache, því minna overclock. það verður gaman að sjá þessa örgjörva í 875
Sent: Mið 30. Jún 2004 00:17
af wICE_man
Sammála Gnarri
Sent: Mið 30. Jún 2004 01:17
af Arnar
Eruði ekkert að fylgjast með s939?
Ég hef séð nokkra ná upp í 3.4ghz með FX-53, sem er 2.4ghz stock
Sent: Mið 30. Jún 2004 21:49
af wICE_man
3.4GHz!!!!!!
Hvar hefurðu séð það, þeir eru að ná 2.7GHz hæst með loftkælingu.
Sent: Mið 30. Jún 2004 21:50
af Steini
með einhverri vapochill þá?