Síða 1 af 2
2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 16:55
af intenz
Þetta er algjört rugl. Fyrst fer að heyra smelluhljóð í 1,5 TB Barracuda disknum mínum. Svo hverfur hann úr Disk Management.
Núna 2 dögum seinna fer 500 GB Barracuda diskurinn minn. Veit ekki hvort hann sé ónýtur þar sem hann er sjáanlegur í BIOS, en hann hvarf allavega úr Disk Management.
Er Seagate svona mikið drasl?
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:00
af Hvati
Hef þurft að skipta út einum 1TB frá þeim og ég hef tvisvar þurft að skipta út 1,5 TB diskum frá þeim.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:01
af intenz
Já, Seagate fer ekki í mínar tölvur framar
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:03
af AciD_RaiN
Ég hef lengi haldið að seagate væru betri en WD

Nú fer maður að hugsa sig tvisvar um...
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:05
af Hjaltiatla
Á eitt stykki 500 gb Seagate Barracuda og hann hefur reynst mér ágætlega sem stýrikerfisdiskur. Er samt hrifnari af Western digital í HDD bransanum og nota þá til þess að hýsa öll gögnin mín.
Þó maður sé engin WD fanboy þá finnst mér ég alltaf vera betur settur með að nota þá diska þar sem þeir hafa reynst mér mjög vel í gegnum árin.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:07
af DJOli
@Acid_Rain, djóka?
Ég hef notað WD nánast allar götur síðan um 2000, ég á meiraðsegja enn lifandi 80gb Western Digital Caviar IDE disk sem var keyptur einhverntíma um 2000/2001 sem ég styðst við sem sönnun fyrir gæðum Western Digital.
Því miður, vegna verðs harðra diska í dag hef ég þó þurft að prufa hin merkin (væl) og er ég því með einn 1tb Samsung disk og einn 250gb Seagate.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:12
af AciD_RaiN
DJOli skrifaði:@Acid_Rain, djóka?
Nei því miður. Heyrði þetta 2004 or sum og hef bara ekki kynnt mér það en þegar þessi þráður kom upp þá fattaði ég að ég á 4 ónýta seagate diska en WD diskarnir mínir eru allir í lagi. Vona að amk þessi 1.5tb hafi verið í ábyrgð...
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:13
af biturk
samsung hafa staðið sig best að mínu mati
tveir diskar sem hafa dáið hjá mér og þeir hafa báðir verið wd
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:13
af Haxdal
Mín getgáta er að þetta sé persónubundið.
Ég hef átt allskonar diska, samt aðallega WD. Hjá mér hafa bara 2 diskar farið, báðir verið Seagate. Elsti 80GB WD diskurinn minn er orðinn hundgamall en ennþá er í lagi með hann.
Félagi minn hefur líka átt allskonar diska, þá aðallega Seagate diska. Hjá honum hafa bara WD diskar farið en allir Seagate diskarnir eru í lagi.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:17
af ASUStek
mín reynsla er að IBM deskstar diskarnir IDE endast en ég á 2 samsung diska ónýta 1tb sata og einn IDE 80gb,síðan WD blue 160gb dauður,og síðan seagate OEM disk ónýtur og ég get haldið áfram en þetta er eiginlega bara lottó hver endist og hver endist ekki
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:18
af Revenant
Getur verið að powersupply-ið sé að bila? Það getur auðvitað gerst að tveir diskar fari með stuttu millibili en þú getur athugað með fjölmæli hvort að PSU-ið sé örugglega ekki að gefa frá sér +5V og +12V
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 17:57
af Saber
Þetta er allt sami skíturinn. Ég á einn 10GB Seagate disk sem ég keypti nýjan á tæpan 40.000 kall fyrir milljón árum síðan og hann virkar enn 100%!
Það sem hefur feilað hjá mér er Maxtor, Western Digital og IBM.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 18:02
af astro
Fóru 4... JÁ 4 STK 500gb (Seagate barracuda) diskar hjá mér 2009, þeir hjá tölvuvirkni voru farnir að halda örugglega að ég væri að skemma þá viljandi, haha

En þeir virtust alltaf jafn kátir þegar ég labbaði með "nýja" diskinn aftur inní búðina og sagði þeim að hann væri ónýtur (smelluhljóð og síðan undetectable) og létu mig alltaf fá nýjan á staðnum.
Ég er á 5mmta disknum sem hefur virkað síðan þá, ég geymi alldrei neitt merkilegt á þessum disk nema bíómyndir og eitthvað svoleiðis því þegar dagurinn kemur
sem hann hrynur verður mér ekki brugðið...

WD hefur alldrei feilað hjá mér. Kaupi mér alldrei aftur Seagate.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 18:09
af GuðjónR
Seagate hefur nú alltaf þótt ákeðið "gæðamerki", menn geta samt átt sína uppáhaldstegund (Samsung hér).
En málið er að allir HDD bila.
Ef þú missir tvo HDD í sömu tölvunni með svona stuttu millibili þá myndi ég hafa áhyggjur af því að eitthvað í tölvunni væri að skemma þá.
Gallað móðurborð, PSU eða eitthvað bara. Þetta er mjög grunsamlegt.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 18:14
af worghal
hjá mér er þetta akkúrat öfugt, WD diskat hafa hrunig hægri vinstri á meðan seagate hafa virkað eins og í sögu

Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 18:20
af beatmaster
Ég hef í gegnum tíðina séð mikið af látnum HDD
Þeir hafa komið frá öllum HDD framleiðendum og virðist mér enginn vera undanskilin þar, alltaf jafnmikið hlutfall af fólki virðist vera sem að fílar ekki einhverja ákveðna tegund, þessi notar aldrei WD því að þeir eru drasl, 2 aðrir vilja ekki sjá Samsung og aðrir 2 munu aldrei nota Seagate diska
Ég sjálfur var alltaf mjög hrifinn af WD þangað til að ég missti öll gögn sem að ég átti, ég með herkjum og mikilli vinnu náði að bjarga ljósmyndunum okkar en ef eitthvað er þá kenndi þetta mér mikilvægi backup og þess að eiga afrit af því sem að skiptir mig máli
Ég hef haldið mig við Seagate síðann en ég held að þetta sé alltaf spurning um heppni eða óheppni frekar en nokkuð annað
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 19:51
af intenz
160 GB Samsung diskurinn minn hérna er 4 ára gamall og hefur verið notaður sem stýrikerfisdiskur allan þennan tíma....... enn í fullu fjöri!
Héðan í frá er það bara Samsung!!!!
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 19:58
af Olafst
intenz skrifaði:Héðan í frá er það bara Samsung!!!!
Seagate er búið að kaupa diskaframleiðsluna af Samsung
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 20:01
af intenz
Olafst skrifaði:intenz skrifaði:Héðan í frá er það bara Samsung!!!!
Seagate er búið að kaupa diskaframleiðsluna af Samsung
LOL þá er það ekki Samsung héðan í frá
Prófa WD næst

Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 20:09
af Klemmi
Persónulega átt 2x diska sem hafa bilað, 40GB og 30GB Western Digital.
Annars bara verið með Seagate og Samsung í vélunum hér heima, enginn af þeim klikkað hingað til, 7-9-13.
En eins og Guðjón sagði, þá bilar þetta allt, og eru SSD engin undantekning (fyrir utan Intel.... ekki séð Intel disk klikka), þrátt fyrir að byggja á allt annari tækni

Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 21:34
af AntiTrust
2 diskar frá solid framleiðanda að fara með svona stuttu millibili?
Utanaðkomandi ástæða, klárt mál. Spennuflökt, PSU að fara, etc.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 21:47
af Klemmi
AntiTrust skrifaði:2 diskar frá solid framleiðanda að fara með svona stuttu millibili?
Utanaðkomandi ástæða, klárt mál. Spennuflökt, PSU að fara, etc.
Og þá sérstaklega þar sem þetta er sitthvor týpan af diskum.
Maður hefur því miður séð diska með samliggjandi serial númerum koma til baka á svipuðum tíma, einhver galli í framleiðslu.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 22:01
af Daz
Klemmi skrifaði:AntiTrust skrifaði:2 diskar frá solid framleiðanda að fara með svona stuttu millibili?
Utanaðkomandi ástæða, klárt mál. Spennuflökt, PSU að fara, etc.
Og þá sérstaklega þar sem þetta er sitthvor týpan af diskum.
Maður hefur því miður séð diska með samliggjandi serial númerum koma til baka á svipuðum tíma, einhver galli í framleiðslu.
Ég hef séð mælt með því þegar maður er að setja í RAID að taka ekki NÁKVÆMLEGA eins diska (t.d. samliggjandi seríal númer), því það eru góðar líkur á að þeir muni þá báðir klikka með stuttu millibili.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 22:06
af Klemmi
Daz skrifaði:Ég hef séð mælt með því þegar maður er að setja í RAID að taka ekki NÁKVÆMLEGA eins diska (t.d. samliggjandi seríal númer), því það eru góðar líkur á að þeir muni þá báðir klikka með stuttu millibili.
Jámm, höfum fengið kröfu um það þegar við höfum verið að selja tölvur með mörgum diskum í RAID að hafa diskana a.m.k. úr tvem mismunandi sendingum að utan.
Re: 2 Seagate diskar farnir á 2 dögum
Sent: Fim 26. Jan 2012 22:06
af intenz
AntiTrust skrifaði:2 diskar frá solid framleiðanda að fara með svona stuttu millibili?
Utanaðkomandi ástæða, klárt mál. Spennuflökt, PSU að fara, etc.
Hefðu þá ekki 4 ára Samsung diskurinn minn farið líka og flakkarinn? En ekki bara þessir 2 Seagate diskar?