Síða 1 af 1
Vinnsluminni í Dell Dimension 4600.
Sent: Mán 23. Jan 2012 17:46
af geysir
Daginn.
Nú vantar mig smá aðstoð, er með Dell borðtölvu sem foreldrar mínir eiga og vantar aðeins að hressa upp á hana.
Vantar að vita hvernig vinnsluminni er í svona grip, tölvan staðsett upp í sveit og vil því geta fengið það nokk staðfest áður en maður fer í sveitina með vinnsluminni að henda í gripinn.
Einnig ef einhver á eitthvað af minni í gripinn sem hann er til í að selja að þá væri það frábært! (atligeysir at gmail.com)
Hún heitir Dell Dimension 4600. 2.8 Ghz örgjörvi og heil 512 mb í henni núna.
Með fyrirfram þökk, Atli.
Re: Vinnsluminni í Dell Dimension 4600.
Sent: Mán 23. Jan 2012 17:49
af Klaufi
Sæll,
Þori nánast að lofa þér því að það sé DDR 400Mhz (Oft flokkað undir PC3200) minni í henni.
Getur ekki passað að ég hafi keypt af þér bjöllu fyrir 8-10 árum eða svo?
Re: Vinnsluminni í Dell Dimension 4600.
Sent: Mán 23. Jan 2012 17:59
af geysir
Klaufi skrifaði:Sæll,
Þori nánast að lofa þér því að það sé DDR 400Mhz (Oft flokkað undir PC3200) minni í henni.
Getur ekki passað að ég hafi keypt af þér bjöllu fyrir 8-10 árum eða svo?
Það var það sem mig grunaði.
Verst hvað DDR minnin eru dýr, það er bara 10k fyrir 2 gb sem er nú algert lágmark.
Heyrðu jú, það er rétt með bjölluna. Hvernig fór með buggy-inn?
Re: Vinnsluminni í Dell Dimension 4600.
Sent: Mán 23. Jan 2012 18:08
af Klaufi
Hérna eru 4x 256mb kubbar til sölu sýnist mér, ef að eitt gíg í heildina er nógu fyrir þig:
viewtopic.php?f=11&t=44981Annars er held ég slatta eftirspurn eftir stærri kubbum..
Ég á til 2x512mb kubba og 2x256mb kubba held ég, en það fylgja þeim heilar tölvur

Buggý-inn endaði bara svona:
viewtopic.php?p=311803#p311803
Re: Vinnsluminni í Dell Dimension 4600.
Sent: Mán 23. Jan 2012 18:10
af AciD_RaiN
Hún amk þolir ekki meira en 2gb
Re: Vinnsluminni í Dell Dimension 4600.
Sent: Mán 23. Jan 2012 19:49
af einarhr
AciD_RaiN skrifaði:Hún amk þolir ekki meira en 2gb
Ertu viss? Skv. DELL notar þessi vèl DDR1 minni og hámark 4gb sjá link.
http://support.dell.com/support/edocs/systems/dim4600/en/4600i/sm/specs.htmEkki fullyrða um hluti sem þú veist ekkert um!
Sent from my GT-I9100 using Tapatalk
Re: Vinnsluminni í Dell Dimension 4600.
Sent: Mán 23. Jan 2012 19:50
af AciD_RaiN
einarhr skrifaði:AciD_RaiN skrifaði:Hún amk þolir ekki meira en 2gb
Ertu
Sent from my GT-I9100 using Tapatalk
er ég hvað??