Síða 1 af 1
Reynsla af Hitachi hdd
Sent: Þri 22. Jún 2004 23:28
af Guffi
Hefur ither reynslu af þessum Hitachi hdd. og hvort ætti maður að fá sér sona Hitachi eða wd 200gb.
Sent: Þri 22. Jún 2004 23:43
af Arnar
Þessum hitachi hdd ?
Ég hef átt Hitachi hdd og það var ekkert að honum..
Sent: Þri 22. Jún 2004 23:57
af Zkari
Ég er með 160gb Sasmung hdd, mjög hljóðlátur og góður
160gb Samsung. Svo er ég með einn 40 gb WD.
Sent: Mið 23. Jún 2004 01:16
af fallen
Alls ekki WD.
Hávaðasamir og bila hægri vinstri.
Sent: Mið 23. Jún 2004 01:27
af Dannir
Ég er með 2 hitachi diska og einn samsung disk.
Þessir hitachi diskar eru að standa sig alveg frábærlega.
Það eru læti í samsunginum þegar hann er að vinna en ekki hitachi diskunum og svo heyrist í hvorugum í idle.
Ég keypti þessa diska fyrir tilviljun átti inneign og þeir áttu ekki seagate né samsung þegar ég fór að versla.
semsagt
Hitachi: 10/10
samsung: 9/10
wd: 0/10 (2 hrundu hjá mér með 200gb af efni sem ég saknaði mikið)
þetta er bara mín skoðun og er ég engin sérfræðingur
Sent: Mið 23. Jún 2004 12:38
af MezzUp
ég á tvo WD diska, og mínir eru í frábæru standi
Sent: Mið 23. Jún 2004 12:44
af Emizter
Zkari skrifaði:Ég er með 160gb Sasmung hdd, mjög hljóðlátur og góður
160gb Samsung. En ég hef heyrt að WD diskarnir verði mjög hávaðasamir eftir einhvern tíma.[/url][/u]
Já Samsung eru víst fínir sko.. en sko ef þú kaupir nýju gerðina af WD diskunum, þeir eru með nýju legunum, þá eiga þeir að vera hljóðlátir.
Fallen skrifaði:Alls ekki WD.
Hávaðasamir og bila hægri vinstri.
Já eins og ég sagði þarna fyrir ofan eru nýju diskarnir frá þeim með nýju legunum hljóðværir, og svo þegar Samsung diskarnir fara að seljast í svona gríðarlegu magni eins og WD gerði á sínum tíma fara líka að heyrast svona bilunar sögur af Samsung

Sent: Mið 23. Jún 2004 16:22
af tms
MezzUp skrifaði:ég á tvo WD diska, og mínir eru í frábæru standi
Sama hér, einn WD800SE og annar nýr WD1600 allir í tip-top standi
Sent: Mið 23. Jún 2004 16:42
af Pandemic
Er með 3 80GB WD og einn 120GB WD hafa ekki bilað og í tip-top standi
Sent: Mið 23. Jún 2004 18:48
af OverClocker
Ég á samsung.. og er mjög ánægður með hann.
Sent: Mið 23. Jún 2004 20:59
af Zkari
WD-inn minn er 2 og hálfs árs gamall, aldrei crashað eða neitt gerst. Svo er hann ekkert mjög hávaðasamur.
Sent: Mið 23. Jún 2004 21:58
af Cicero
hef átt u.þ.b. 4 WD diska.
Fyrstu 2 diskarnir sem voru sitthvor 80gb hrundu báðir og ég misti mikið af efni
Ég fór með diskana og fékk 2 nýja og þeir hafa ekki brugðist ennþá
og þeir eru alls ekki háværir hjá mér
Sent: Fim 24. Jún 2004 16:26
af gnarr
hvað er þeta.. afhverju eruði svona mikið að hæla WD. það er margsannað að hvort sem þessir diskar haldast í gangi eða hljóðlátir í 2 ár, þá eru þeir samt með lélegasta performance af ÖLLUM HD framleiðendum í heimi!
7200snúninga WD diskarnir eru að performa svipað og 5400snúninga diskar frá öðrum framleiðendum. einu WD diskarnir sem eru að skila einhverjum hraða eru raptorarnir, en þar er maður að fá mjög lítið pláss fyrir peninginn.
Sent: Fim 24. Jún 2004 17:14
af Jakob
Ég er löngu búinn að gefast upp á WD ... Kaupi ekkert annað en Seagate í dag !
Sent: Fim 24. Jún 2004 17:51
af MezzUp
Vitaskuld bila margir WD diskar þegar svona margir verða seldir, WD var nú einmmit aðalæðið fyrir ári eða tveim, og þeir sem keyptu þá voru helst tölvunördarnir sem að við fellow-tölvunördar heyrum mest í í dag. Svipað var með Maxtor áður en WD æðið kom, þá hættu allir að kaupa maxtor, og þ.a.l. hef ég ekki heyrt um bilaðan Maxtor disk í 2-3 ár.
Flott væri ef að maður sæji einhvernsstaðar síðu með bilanaprósentu mismunandi framleiðenda
Mér sýnist nú á listunum
hérna að WD dreifi sér bara allstaðar á performance línuna, ekkert frekar á botninum en hvað annað.
ps. hafa menn ekki líka pælt í afhverju þið lesið meira um windows vandamál á netinu? kannski afþví það eru mun fleiri windows notendur?
Sent: Fim 24. Jún 2004 19:20
af viddi
ég er með einn Maxtor og einn Samsung heirist ekki í þeim og er mjög ánægður
Sent: Fim 24. Jún 2004 22:49
af Hlynzi
Svona til að upplýsa menn.
Þá var það Hitachi sem tók við framleiðslu IBM harðra diska hér fyrir nokkru síðan, og þá fóru þeir að hrynja eins og þeim væri borgað fyrir það, vegna hita vandamála. Ferðatölvan mín er með IBM / Hitachi Disk, 60 gb og hann virkar mjög vel, og hefur eigi slegið feil púst.
Ég held að málið sé að fá sér IBM disk í dag (hitachi) því þeir hafa lagað öll þessi vandamál sem við vorum hræddir við hér forðum.
Sent: Fös 25. Jún 2004 00:38
af Pectorian
Ég myndi fá mér Seagate Barracuda 200 GB ef ég væri að fá mér disk í dag en ætli eg verði ekki að láta mér nægja minn VD80 að sinni
Sent: Fös 25. Jún 2004 01:18
af GuðjónR
Pectorian skrifaði:Ég myndi fá mér Seagate Barracuda 200 GB ef ég væri að fá mér disk í dag en ætli eg verði ekki að láta mér nægja minn VD80 að sinni
Ég keypti einn svoleiðis í síðustu viku...og þvílík snilld! Uber hraður og það heyrist nákvæmlega ekkert í honum.
Sent: Lau 10. Júl 2004 11:20
af Icarus
Ég er líka einmitt að kaupa disk handa frænda mínum sem býr á vestfjörðum og hann bað um 200gb hitachi disk í att.is nema að þeir eiga hann ekki til svo að hann bauð mér 200gb WD disk þúsund krónum ódýrari en þeir eru að selja hann á... ætti ég að bíða í viku eftir hitachi disknum eða skella mér á WD ?
Sent: Lau 10. Júl 2004 11:29
af viddi
bíddu eftir hitachi disknum
Sent: Lau 10. Júl 2004 12:17
af GuðjónR
En af hverju endilega Hitachi ?
Sent: Lau 10. Júl 2004 13:30
af Hlynzi
Icarus skrifaði:Ég er líka einmitt að kaupa disk handa frænda mínum sem býr á vestfjörðum og hann bað um 200gb hitachi disk í att.is nema að þeir eiga hann ekki til svo að hann bauð mér 200gb WD disk þúsund krónum ódýrari en þeir eru að selja hann á... ætti ég að bíða í viku eftir hitachi disknum eða skella mér á WD ?
Hitachi