Síða 1 af 1
Hvernig setur maður saman tölvu
Sent: Þri 22. Jún 2004 04:37
af machinehead
Nú er ég að fara að kaupa alla hlutina í nýju tölvuna, er eitthvað svaka mál að setja hana saman, þar einhvern professional í það, mig langar voða að gera þetta sjálfur og geta sagt, "ég setti þessa tölvu saman sjálfur". Eigið þið einhverjar teikningar eða einhverskonar leiðbeiningar til að hjálpa mér?
Sent: Þri 22. Jún 2004 07:13
af Arnar
Það er ekkert flókið að setja saman nýja tölvu.
Bara skrúfa móðurborðið í kassan og festa allt í það

Sent: Þri 22. Jún 2004 09:58
af MezzUp
held að það sé best að vera búinn að lesa sér soldið til áður, skalt frekar opna tölvuna þína og skoða það sem er inní henni og athuga hvort að þú heldur að þú vitir c.a. hvaða kapall geriri hvað og hvernig og hvert hann á að fara
Sent: Þri 22. Jún 2004 11:08
af Zaphod
Þetta er alltsaman mjög einfalt , það eru yfirleitt ágætis leiðbeiningar sem fylgja móðurborðum .....
Muna eftir að hafa kælikrem á örranum og hvergi áttu að þurfa að nota afl til að koma neinu saman ....
Svo auðvitað nota réttu skrúfurnar til að festa móðurborðið í (kannast við 2 sem notuðu venjulegu skrúfurnar ekki gott mál) Annað hvort eru það gullitaðar skrúfur eða svona plasttyppi ...
Og svo er líka gott að nudda aðeins stofuofninn heima hjá þér til að losna við stöðurafmagn ....
Sent: Þri 22. Jún 2004 11:09
af Johnson 32
ég hef oft þurft nógu af afli til að setja sumar bannsettu örgjörvaviftur á :

Sent: Þri 22. Jún 2004 11:45
af Stutturdreki
Er nú frekar erfitt að teikna þetta upp en þetta er nú ekki eins erfitt og margir halda. Versta sem getur gerst er að þú missir hluti eða stöðurafmang skemmi eitthvað fyrir þér.
1. forðast stöðurafmagn (ekki vera í flíspeysu eða ganga mikið á ullarteppi og jarðtengja sig áður en þú hefst handa) og alltaf hafa aðra höndina á kassanum þegar þú tekur upp hluti sem þú ert að fara að setja í kassann.. Til einhver armbönd til að nota sem jarðtengingu en ég hef aldrei prófað þau..
2. ekki hafa neitt í sambandi
og taka eins mkið úr kassanum og þú þarft til að það sé nóg pláss til að athafna sig.
3. setja örgjörfan í móðurboðrið áður en þú lætur móðurborðið í kassan.
4. EKKI MISSA ÖRGJÖRFAN! Vanda sig þegar þú setur örgjörfan í móðurborðið, ef þú missir hann gætu pinnarnir skekst.
5. passa að kæliplatan passi vel ofan á örgjörvan og nota kælikrem/límpúða (fylgdi límpúði með P4 örgjörvanum sem ég keypti mér í síðustu viku, intel mælir með því svo kæliviftan festist ekki við örgjörvan..).
6. áður en móðurborðið fer í kassann þarf að setja 'lyftingu' undir það.. kopar skrúfur sem eru skrúfaðar í kassann og móðurboðið er síðan skrúfað ofan á þær. Passa að það sé ekkert annað sem snertir neðrihliðina á móðurborðinu!!!
Annað er nú nokkuð augljóst.. kannski best að byrja á því að setja minnið í móðurbörðið, svo pci/agp kort og enda á köplum og snúrum..
Sent: Þri 22. Jún 2004 14:40
af SolidFeather
Svo er líka gott að taka gamla tölvu í sundur og láta hana aftur saman.
Sent: Þri 22. Jún 2004 14:59
af Voffinn
Það fylgir líka alltaf bæklingur með móðurborðum... það væri alls ekki slæm hugmynd að lesa hann

?
Sent: Mið 23. Jún 2004 01:01
af machinehead
Þarf ég að setja þetta kælikrem eitthvað oft á eða bara í þetta eina skipti?
Re: ?
Sent: Mið 23. Jún 2004 01:15
af fallen
machinehead skrifaði:Þarf ég að setja þetta kælikrem eitthvað oft á eða bara í þetta eina skipti?
Bara einusinni og ekki setja of mikið, það er bara verra.
Sent: Mið 23. Jún 2004 12:02
af Pandemic
ég sett nú bara nýtt á þegar tölvan lendir í því að vera rifin í sundur t.d Céramique skreppur saman á lítin stað á örranum eftir svona 1/2 - 1ár
Sent: Fim 24. Jún 2004 12:43
af Revenant
Fyrst af öllu, EKKI FLÝTA ÞÉR. Síst af öllu viltu eyðileggja eitthvað í fljótfærni.
Í öðru lagi þá er alltaf gott að lesa handbókina/uppsetningarplaggið sem fylgir móðurborðinu. Þar er alltaf sagt í hvaða röð og hvernig þú átt að setja hvaða hlut í á hvaða stað o.s.frm.
Einnig er gott (ef þú vilt fá nánari upplýsingar) þá er
Toms Hardware með ágætar leiðbeiningar hvernig á að búa til tölvu sjálfur.
Sent: Fim 24. Jún 2004 13:00
af Snorrmund
Kíkja í næstu búð.. OG gá hvort eitthvert af tölvublöðunum séu að fara yfir þetta ... Ég keypti þannig blað fyrir löngu það var þægilegt því það var allt sýnt og myndir af öllu..
Sent: Fim 24. Jún 2004 19:42
af OverClocker
Fáðu bara leiðbeiningar í búðinni þar sem þú kaupir íhlutina.
Sent: Fim 24. Jún 2004 22:54
af Hlynzi
Ég myndi segja að smá jarðtenging til að byrja með er ágæt, og ekki vera í flíspeysu, eða jogging buxum. Þá verðuru pottþétt upphlaðinn af stöðurafmagni.
Eins og einhver sagði .. muna eftir kælikreminu milli örgjörva og heatsinks.
Svo að setja heatsink á AMD örgjörvana verðuru að hafa skrúfjárn sem passar til að setja spennuna á, og stöðuga hendi/hendur, og ekki renna. Mér tókst að eyðileggja móðurborð með því.
Allt annað er "idiot proof" nema floppy drifs kapallinn. Ef það kemur error prompt "floppy drive fail 40" eða álíka snýr hann vitlaust. Þú getur séð að við pinnana er alltaf merkt 1 og 2, uppí ýmislegar tölur. Þar sem 1 eða 2 er þar fer rauði helmingurinn af floppy kaplinum.
Sent: Fim 24. Jún 2004 23:03
af elv
Breytti titlinum...svo það væri hægt að skilja þetta

Sent: Fim 24. Jún 2004 23:10
af Hlynzi
elv skrifaði:Breytti titlinum...svo það væri hægt að skilja þetta

ooo... þú ert svo klár.
Sent: Fös 25. Jún 2004 04:58
af machinehead
Hehe, ekkert má Elv