Síða 1 af 1
Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 03:08
af Black
ég er með einhvern feitann vírus í tölvunni minni.. sem er að éta upp Cpu og Ram hjá mér, vantar einhverja góða vírusvörn sem gæti fundið hann.. er búinn að prufa Spyware Doctor, og Avg.Avg fann fullt af öðrum vírusum

Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 03:18
af worghal
en þetta er ekki vírus...

Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 03:28
af Black
hvað er þetta þá :I það eru svona 10 svchost files, í task manager hjá mér, og eru að nota helling af ram og cpu var að prufa uniblue registry booster og það virkaði ekki

Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 03:30
af worghal
þetta er drasl sem heldur windows gangandi

svo er líka til google.com
http://www.howtogeek.com/howto/windows- ... t-running/
Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 03:32
af J1nX
held samt að það sé til svchost vírus sem gerir nákvæmlega þetta, er samt ekki viss, nenni ekki að googla og ath þetta

Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 03:34
af Black
þetta byrjaði bara í gær, fór að lagga feitt í bf3 gat ekki spilað og þá var þetta komið í taskmanager,svchost.exe x20 aldrei verið áður

J1nX skrifaði:held samt að það sé til svchost vírus sem gerir nákvæmlega þetta, er samt ekki viss, nenni ekki að googla og ath þetta

já það er akkúrat það sem ég er búinn að vera googla, líka aðþví þetta var bara að byrja að koma upp
Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 04:02
af worghal
farðu í command prompt og gáðu hvað þessir svc fælar eru að gera
setur bara inn "tasklist /svc" án gæsalappa og þá á að koma upp listi af öllum process og hliðina á því stendur hvað hver og einn fæll er að þjónusta
Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 04:04
af Gúrú
Ég er með svona 8-ish svchost.exe eins og flestir, þau eru öll runnandi á User Nameunum System, Network Service og Local Service,
engin á mínum user (Gúrú), ef að þú ert með svchost.exe runnandi á þínum user þá gætirðu haft áhyggjur af þessu.
Það er líka fjöldinn allur af glitches í forritum sem að valda því að fuuuuullt af svchost.exe opnast.
Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 10:02
af dandri
svchost er system fæll en það er algengt að vírusar taki sér þetta nafn til þess að felast.
Mæli með því að þú skoðir startup hjá þér, sjáir hvort það séu einhverjir grunsamlegir fælar.
Fáðu þér svo vírusvörn, mæli með Microsoft security essentials eða Avast!
Þú getur skoðað startup hjá þér með því að fara í start og skrifa msconfig þar. Eftir að þú hefur gert það ferðu í startup flipann og sérð þar lista yfir skrár sem keyra þegar windows ræsir sig.
Ég ræð þér frá því að reyna að gera þetta í registry ef þú hefur enga reynslu af því.
Re: Svchost.exe Host Process - Vírus
Sent: Fim 05. Jan 2012 10:21
af Black
dandri skrifaði:svchost er system fæll en það er algengt að vírusar taki sér þetta nafn til þess að felast.
Mæli með því að þú skoðir startup hjá þér, sjáir hvort það séu einhverjir grunsamlegir fælar.
Fáðu þér svo vírusvörn, mæli með Microsoft security essentials eða Avast!
Þú getur skoðað startup hjá þér með því að fara í start og skrifa msconfig þar. Eftir að þú hefur gert það ferðu í startup flipann og sérð þar lista yfir skrár sem keyra þegar windows ræsir sig.
Ég ræð þér frá því að reyna að gera þetta í registry ef þú hefur enga reynslu af því.
alright, þetta var allavega augljóslega vírus hjá mér, gat ekki horft á mynd án þessa að allt væri að lagga í drasl, er bara að formata tölvuna núna
