Síða 1 af 1
skjakort ? hvort FX5900XT eða FX5700Ultra ?
Sent: Fim 17. Jún 2004 18:41
af surtur
þetta
hérna? eða þetta
hérna ?
Sent: Fim 17. Jún 2004 19:31
af MezzUp
hafa lýsandi titil!

Sent: Fim 17. Jún 2004 19:39
af surtur
Sorry Gummi þetta var óvart var að flýta mér í sturtu

.
En hvort skjákortið ?
Sent: Fim 17. Jún 2004 22:19
af MezzUp
surtur skrifaði:Sorry Gummi þetta var óvart var að flýta mér í sturtu

.
En hvort skjákortið ?
I'll bite, hver er?

Sent: Fim 17. Jún 2004 22:34
af viddi
Þú færð meira útúr 5700 ultra kortinu
ég myndi taka það ef ég væri þú
..
Sent: Fim 17. Jún 2004 22:41
af DaRKSTaR
ef þú ert fastur á því að fá þér geforce
ættirðu að taka 5700 ultra, það er toppkortið í þeirri línu meðann 5900xt er low end kort í 5900 línunni.
öfugt við ati, ati xt kortin eru stærstu kortin meðan xt eru minnstu hjá geforce..
samt finnst mér bæði kortin bull útaf verðinu, ef þú tímir 25þús í 5700 ultra því ekki bæta 5 þús kalli við og fara í att og fá þér radeon 9800 pro?
9800 pro á att 29.750
9600 xt á att 18.450
Sent: Fös 18. Jún 2004 09:52
af OverClocker
viddi3000 skrifaði:Þú færð meira útúr 5700 ultra kortinu
ég myndi taka það ef ég væri þú
Hvaða bull er þetta? 5900XT skorar miklu meira.. er miklu öflugra kort!!!! og er ódýrara!
Sent: Fös 18. Jún 2004 11:32
af surtur
Gummi, Tóti hérna

Og btw. takk fyrir svörin..
Sent: Mán 21. Jún 2004 20:11
af Hörde
What the fökk! Á þetta ekki að vera hardware forum?
5900xt RÚSTAR 5700Ultra.
Þetta eigið þið sem gefið ráðleggingar að vita. Svona lagað á maður bara að sjá á BT-spjallinu.
SKAMM!
Sent: Mán 21. Jún 2004 20:17
af Sup3rfly
nah, ultrainn er muun betri, ég er alltaf að sjá fólk með endalaust af vandræðum með 5900. Svo er ultra-inn bara betri IMO
Sent: Mán 21. Jún 2004 20:17
af Pandemic
5900XT er svipað og SE kortin hjá Ati low budget drasl kort
Sent: Mán 21. Jún 2004 20:21
af Hörde
Ég veit ekki hvaða krakk þið eruð að reykja, en úti í hinum stóra heimi væri hlegið að ykkur fyrir þetta.
Nvidia hættu framleiðslu á 5900xt kortunum EINMITT VEGNA ÞESS að þau átu markaðinn á öllum high-end kortunum þeirra (svo ekki sé minnst á 5700-línuna).
5900-línan: 4x2 pípur + 256-bita minnisbraut
5700-línan: 4x1 pípur + 128-bita minnisbraut
Eini munurinn á 5900xt og 5950ultra kortunum er hins vegar færri mhz.
5900xt: 400/700
5950ultra: 475/950
Og reikniði nú.
Sent: Mán 21. Jún 2004 21:46
af MezzUp
Hörde skrifaði:Nvidia hættu framleiðslu á 5900xt kortunum EINMITT VEGNA ÞESS að þau átu markaðinn á öllum high-end kortunum þeirra (svo ekki sé minnst á 5700-línuna)
hættu þeir að framleiða þau afþví að þau seldust OF-vel??

Sent: Mán 21. Jún 2004 22:03
af Hörde
MezzUp skrifaði:Hörde skrifaði:Nvidia hættu framleiðslu á 5900xt kortunum EINMITT VEGNA ÞESS að þau átu markaðinn á öllum high-end kortunum þeirra (svo ekki sé minnst á 5700-línuna)
hættu þeir að framleiða þau afþví að þau seldust OF-vel??

Já, eða öllu heldur vegna þess að það seldist OF LÍTIÐ af dýru high-end kortunum.
Það gerðist einmitt vegna þess að 5900xt kortin eru *næstum því* jafn hraðvirk og 5950ultra kortin.
Sent: Mið 23. Jún 2004 20:22
af Lazylue
Skipti úr 5600 í 5900xt og er nú bara mjög ánægður með nýja kortið.
Fór úr 2700 stigum í 5280 í 3dmark 2003 og úr 10000 í 14000 3dmark 2003.
Sé nú ekki að það sé eitthvað annað kort á markaðnum sem er að skora jafn vel fyrir jafn lítin pening.
Síðan er að sjá hvað maður getur yfirklukkað það mikið.