Er að fá mér nýja viftu
Sent: Lau 12. Jún 2004 21:36
Málin standa þannig að ég á tvær viftur sem er báðar ómögulegar (ein viftan er hljóðlát en blæs ekki nógu vel þannig að tölvan fær bsod oft á dag, hin er ALLTOF hávær og er að gera alla brjálaða á heimilinu þó sérstaklega mig en tölvan virkar vel með henni) svo að ég ætla að skella mér á nýja. Eftir að hafa skoðað nokkra þræði hérna þá sýnist mér þið mæla mest með Zalman CNPS7000A viftunni (http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=359) Spurningin er bara.. ég er ekki viss hvort að hún myndi fitta í tölvuna mína. Ég er með 2000XP örgjöva og VIA móðurborð (eigilega ekki viss um gerðina, en það stendur nokkuð stórum stöfum "v266b" á borðinu
). Myndi viftan passa í tölvuna mína?
