Síða 1 af 1

Panta Razer lyklaborð frá útlöndum

Sent: Fös 23. Des 2011 13:42
af Senko
Hef verið að leita af Razer BlackWidow Ultimate en virðist ekki fást neinstaðar á Íslandi, hvaða síðu recommendið þið til að panta þetta á frá utan? Er kannski hægt að biðja tölvuverslun að koma með eitt stykki með sér þegar þeir panta aðrar Razer vörur?

Re: Panta Razer lyklaborð frá útlöndum

Sent: Fös 23. Des 2011 15:01
af ViktorS
Það fæst hjá Tölvutækni

Re: Panta Razer lyklaborð frá útlöndum

Sent: Fös 23. Des 2011 15:06
af Senko
Þetta er ekki Ultimate edition.

Re: Panta Razer lyklaborð frá útlöndum

Sent: Fös 23. Des 2011 15:13
af vesley
Senda bara póst á verslanir, ætti ekki að vera mikið mál að redda Ultimate útgáfunni.

Re: Panta Razer lyklaborð frá útlöndum

Sent: Fös 23. Des 2011 15:17
af Klemmi
Getum fengið Ultimate, höfum bara ekki tekið hana inn þar sem hún kostar svo mikið meira en standard útgáfan :/

En það er minnsta málið að kippa einu borði með næstu pöntun, en sú pöntun er þó því miður ekki væntanleg fyrr en um miðjan janúar.

Þú hefur samband ef þú hefur áhuga :)

Beztu kveðjur,
Klemenz Hrafn
Tölvutækni

Re: Panta Razer lyklaborð frá útlöndum

Sent: Fös 23. Des 2011 15:35
af Senko
Takk fyrir það Klemmi, hef samband eftir hátíðarnar :).