Síða 1 af 2
Væri þessi vél ekki vel game?
Sent: Fim 10. Jún 2004 16:44
af Disable
Jæja ég er að pæla í að fara að skella mér á smá uppfærslu, og var að spá hvort að þetta væri ekki fínn pakki :
Amd Athlon 2800XP Barton örri
Gigabyte GA-7N400PRO2 móðurborð
512MB DDR400 minni
http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_28_105&products_id=479 - örrinn
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view&flo=product&id_top=945&id_sub=858&topl=10&page=1&viewsing=ok&head_topnav=MOB_7N400PRO2 móbóið
http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_16_156&products_id=991 - minnið
Ef þið hafið eitthvað vit á þessu, segið mér þá hvernig ykkur finnst þetta

Sent: Fim 10. Jún 2004 16:55
af Stebbi_Johannsson
ok fínn pakki
En ég myndi fá mér Abit AN7 hjá hugver. Mjög gott og öruggt móðurborð. kostar líka bara 12990 kr.
Örrinn er fínn
Minnið

fáðu þér frekar 512mb Mushkin DDR400 Basic Green. Mjög gott, öruggt og ódýrt minni

Sent: Fim 10. Jún 2004 17:58
af fallen
Nei.
Sent: Fim 10. Jún 2004 18:07
af Arnar
Fallen, ef þú kemur með svona comment, rökstyttu..
Ekkert leiðinlegra svar við svona heldur en bara "Nei"
Sent: Fim 10. Jún 2004 18:25
af Cicero
Örri: Athlon64 3000+ hjá Start.is - 25.830Kr
móðurborð: Gigabyte GA-K8NS Pro hjá Start.is - 14.390Kr
Minni: 2x Kingston 512MB DDR400, att.is, 23.900
Þetta myndi ég fá mér

Sent: Fim 10. Jún 2004 18:54
af Disable
Takk fyrir ábendingarnar Stebbi

En hvar fæ ég Mushkin minnið?

Sent: Fim 10. Jún 2004 18:55
af fallen
Frekar ónýtt að vera að fá sér svona slappann örgjörva svona seint.
Sent: Fim 10. Jún 2004 19:01
af Disable
núh? Hvernig örgjörva ert þú með?
Sent: Fim 10. Jún 2004 19:18
af fallen
Ég er með 2500xp, keyptur í ágúst í fyrra.
Myndi skella mér á Intel p4 3ghz eða amd64 3200/3000.
Færð miklu meira útúr því uppá framtíðina að gera, þó svo að þú getir alveg yfirklukkað þennann 2800.
Sent: Fim 10. Jún 2004 19:24
af Disable
Já, takk en þá þarf ég samt að bíða aðeins með að kaupa þetta

Sent: Fim 10. Jún 2004 19:27
af Disable
En hey, getiði eitthvað sagt mér um hvernig er að kaupa þetta í USA?

kannski bent mér a einhverjar síður sem ég gæti fengið smá uppl. á.
Sent: Fim 10. Jún 2004 21:54
af Cicero
Disable skrifaði:En hey, getiði eitthvað sagt mér um hvernig er að kaupa þetta í USA?

kannski bent mér a einhverjar síður sem ég gæti fengið smá uppl. á.
http://www.resellerratings.com/ hérna sérðu lista yfir amerískar verslanir

Sent: Fim 10. Jún 2004 22:15
af gumol
Þetta er fínn pakki. En ekki láta nafnið á örranum plata þig.
Sent: Fös 11. Jún 2004 00:50
af Cicero
jafnvel p4 2.8 ghz og overclocka
Sent: Fös 11. Jún 2004 07:58
af gnarr
Fallen skrifaði:Ég er með 2500xp, keyptur í ágúst í fyrra.
Myndi skella mér á Intel p4 3ghz eða amd64 3200xp/3000xp.
Færð miklu meira útúr því uppá framtíðina að gera, þó svo að þú getir alveg yfirklukkað þennann 2800.
Það er nefnilega sjáanlegur munur á 2800xp og 3000-3200xp *hóst*
Sent: Fös 11. Jún 2004 20:34
af fallen
Þetta xp átti ekki að vera þarna fyrir aftan 3000/3200, var að tala um amd64, ekki xp, einsog stendur þarna fyrir framan.
Hélt nú að maður einsog þú myndir fatta hvað ég var að tala um.
Sent: Fös 11. Jún 2004 21:30
af gnarr
ó..

ok. ég byðst afsökunnar.
annars þykir mér lang sniðugast að skella sér annaðhvort á ódýrasta xp64 og GOTT móðurborð eða ódýrasta HT800fsb intelinn og gott móðurborð.
Sent: Lau 12. Jún 2004 02:32
af Disable
Einhver til í að taka challengi? Setja saman fína tölvu (móðurborð, örgjörva og minni) með 40-45.000kr budget?
Takk fyrir
Sent: Lau 12. Jún 2004 03:13
af gumol
Hvort viltu þá fá tölvu eða bara örgjörva+minni+móðurborð (og væntanlega skjákort líka)
Örgjörfi: Intel P4 2.8 Retail 18.990 Start.is
Móðurborð: Abit AI7 12.990 Hugver
Minni: Mushkin PC3200 Basic Green 256mb 5.990 Start.is
Skjákort: Radeon9600 128MB 9.560 Boðeind
Re: Væri þessi vél ekki vel game?
Sent: Lau 12. Jún 2004 13:07
af Demon
Mér líst vel á örran og móbóið.
Ég á 2500xp sjálfur og þetta móðurborð (keypt í feb) og þetta fúnkerar vel saman ásamt góðum overclock möguleikum sem er hægt að stjórna í windows.
Hinsvegar þá er ansi líklegt að eitthvað betra móðurborð sé komið núna þegar júní er um það bil hálfnaður, ég hef ekki fylgst með því sjálfur þar sem ég er ekki að leita að því.
Minnið veit ég ekki um, virtist ekki standa neitt um hvernig minni þetta var...
Sent: Lau 12. Jún 2004 16:34
af wICE_man
Mér lýst vel á örran hjá gumol en restin er í meira lagi vafasöm, 256MB innra minni eiga eftir að hægja á tölvunni í þungri vinnslu og gera að engu afköst örgjörvans. Móðurborðið er þó ágætt en skjákortið er ekkert annað en rusl, það er nefnilega SE! 9600SE er í mörgum tilfellum lélegra en FX5200 (og þá erum við að tala um non-Ultra gerðina!) og stundum allt að helmingi slappara. Það er bara sorglegt að þeir hjá boðeind skrái það sem 9600 kort.
Þessi tölva yrði því varla nothæf.
En þar sem hann var ekki að leyta eftir skjákorti þá mætti setja þann pening í auka minniskubb og þá erum við að tala um fína vél.
Sent: Lau 12. Jún 2004 23:29
af Disable
Þakka ykkur fyrir

Þessi vél þarf bara að höndla, hl2, cs og eve

Sent: Lau 12. Jún 2004 23:37
af Demon
Disable skrifaði:Þakka ykkur fyrir

Þessi vél þarf bara að höndla,
hl2, cs og eve

Jamm, bara hl2 you say

Sent: Sun 13. Jún 2004 02:29
af Cicero
hún mun kannski höndla hl2, en þetta gæti orðið dáltið slideshow
Sent: Sun 13. Jún 2004 15:31
af Disable
hehehe einmitt, "bara"

Hvað segiði, þyrfti ég mikið betri vél í hl2 ?
