Nú getur verið töluverður verðmunur á svipuðum diskum, frá sama framleiðanda úr sömu búðinni, sömu stærðar og með sama Les- & Skrifhraða. Hverju sætir?
Íslenskar tölvubúðir gefa ekki upp meiri upplýsingar en Stærð, Les- & Skrifhraða (segir reyndar allt að þessum og þessum Les- & Skrifhraða á erlendum síðum) og Verð!
Hvað er horft í annað en Les- & Skrifhraða, Stærð og Verð þegar spáð er í SSD Disk?
Eða er þetta kanski það eina sem skiptir mig máli?
