Síða 1 af 1
cpu overheat.
Sent: Mið 09. Jún 2004 01:00
af Ragnar
Já góðan dag (ef það á við). Allavega ég var að fá mér nýja beyglu bara i gær 08/06/04 en ég hef smá áhyggjur sko kassinn er undir borði og örgjörvinn amdxp 2800+ er i 56gráðum as we speak. Hvað ráðleggið þið er þetta hættumál eða er ég safe eða hvað.
Sent: Mið 09. Jún 2004 01:07
af Arnar
ef þetta er stöðugt þá þarftu ekki að hafa áhyggjur..
Þó þetta sé frekar heitt.. þá ertu alveg safe með að þetta skemmist ekki
Sent: Mið 09. Jún 2004 01:41
af Cicero
örgjörvinn er ekki í neinni hættu.
ef þetta helst stabílt á þessu hitastigi þegar tölvan er í fullri vinnslu þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur. amd örgjörvar eru oft frekar heitir,
en það fer bara eftir kælingu

Sent: Mið 09. Jún 2004 12:24
af axyne
Örgjörfinn þinn eyðilegst ekki fyrr en í 85°C
þú ert í fínum málum ef þú ert fyrir neðan 70°C

Sent: Mið 09. Jún 2004 13:30
af Ragnar
ok cool
Sent: Mið 09. Jún 2004 17:26
af Gandalf
ef þú vilt aftur á móti kæla hana meira mæli ég með að þú lesir korka hér á undan um hvað séu góðar örgjörva viftur og veljir eftir því. Svo gæti líka verið ágætt að henda nokkrum til að kæla kassann sjálfan.
Sent: Mið 09. Jún 2004 21:27
af Ragnar
já ég á 2 80mm viftur 1 fylgdi með kassanum og svo átti ég eina fyrir það er bara soltið mál að koma seinni viftunni fyrir (hún er ekki í) því að er ábyrgðar innsigli á hliðini ég verð að rifa það ef ég ætla að opna kassan. = fer ábyrgðinn. Ég þarf bara að koma loftinu á hreyfingu hérna inni hjá mér versla 1 stykki loftviftu og hafa i gangi 24/7 en hún kostar bara 20.000kr takk fyrir endar eru þetta þægileg apparöt.
Sent: Mið 09. Jún 2004 21:50
af fallen
Stafsetning.

Sent: Mið 09. Jún 2004 22:07
af Stebbi_Johannsson
aha maður skildi ekki helminginn af því sem hann var að tjá sig um

Sent: Mið 09. Jún 2004 22:27
af gumol
Ég skildi þetta allt mjög vel.
Sent: Fim 10. Jún 2004 00:13
af KinD^
blehhhh ábyrgð smábirgð.... þú átt eftir að þurfa rífa þetta af hvortsemer :S .... en ég er ekki að hvetja þig samt til að taka hana í sundur

Sent: Fim 10. Jún 2004 02:44
af Ragnar
já þið verðið að fyrirgefa stafsettningu mína var að flýta mér. Ég vil ekki rífa innsiglið fyrst það er svona stutt að ég verslaði hana 08/06/04
Sent: Fim 10. Jún 2004 12:41
af Snorrmund
Hvernig tölva er þetta ? Getur svosem, ef þetta er límmiði notað eitthvað (vatn)

og reynt að ná honum af án þess að "Rífa" Það og líma það á.. Heldur risky en..

Sent: Fim 10. Jún 2004 15:49
af Ragnar
ef þú vilt vita hvað er í þessu þá er það ekkert rosalega merkilegt. Allavega amdxp 2800+, Gf fx 5900ultra 256mb, 1gb/2x512mb minni 333mhz, Ausus A7V8X-MX SE 1 80gb harðurdiskur, combodrif og gamalt floppydrif. þetta er allt upptalið fyrir utan mx700 gamlan 17" hansol skjá og key tronic lyklaborð.
Sent: Fim 10. Jún 2004 23:11
af Hlynzi
Allt undir 60° c (í 100% vinnslu) fyrir AMD örgjörva er bara mjög fínt. Minn er í 51° c í venjulegri vinnslu, og fer í 56 í hámarksvinnslu, 2400XP+.
Sent: Sun 13. Jún 2004 16:06
af Ragnar
já þetta er komið i lag. ég setti aðra 80mm viftu að framan og hann er í 44 as we speak og fer ekki hærra en 55. = good. Allavega þakka allar ráðleggingar og svoleiðis.
Kv Ragnar
Sent: Sun 13. Jún 2004 16:20
af Voffinn
Minn 2500xp fer nú ekki hærra en 30°

Sent: Sun 13. Jún 2004 16:56
af zream
Og hvernig er hann kældur! ?
Sent: Sun 13. Jún 2004 18:13
af Voffinn
Loftkældur bara.
Sent: Sun 13. Jún 2004 18:15
af Arnar
ambient temp 22°c ?
Sent: Sun 13. Jún 2004 19:25
af zream
Voffinn : Með Hverju
Sent: Sun 13. Jún 2004 19:58
af Voffinn
90mm coolermaster viftu sem keyrir í kringum ~1700 rpm.
Sent: Mið 16. Jún 2004 15:09
af ErectuZ
Minn AMD XP2800 er stöðugur í svona 58° þeagr ég er bara á netinu og hlusta á tónlist og svona. Svo fer hann upp í 65° þegar mjöööög mikið er reynt á hann (msn, tónlist, Eve, install...allt þetta saman

)
Sent: Mið 16. Jún 2004 15:13
af zream
Bah , minn er 49° þegar eitthvað smá er í gangi , en samnt er bara hitinn í kassanum 25° , weird stuff.
Sent: Mið 16. Jún 2004 15:16
af ErectuZ
hitinn í kassanum er núna 45°
