Síða 1 af 1
Topp græja?
Sent: Þri 08. Jún 2004 13:01
af gaddavir
Endilega svarið með einhverjum rökum líka. d;o)
Sent: Þri 08. Jún 2004 13:59
af SolidFeather
d;o) <----- wtf?
Sent: Þri 08. Jún 2004 14:31
af gnarr
nógu góð rök?
Sent: Þri 08. Jún 2004 19:09
af GuðjónR
Spurningin er bara hvort hann sé Silent eða ekki...
Sent: Þri 08. Jún 2004 19:10
af fallen
gaddavir, fékkstu tölvuna þína í BT?
Sent: Þri 08. Jún 2004 20:05
af gnarr
hann er ekkert voðalega silent. en hann er MÖÖÖRGUM stigum neðar en WD. allaveganna svona 7-10db lægri
Sent: Þri 08. Jún 2004 21:09
af Pandemic
að setja mynd af sér í avatar er ekki góð hugmynd
og þessi mynd af disknum er ekki að sína mér neitt
Sent: Mið 09. Jún 2004 17:49
af tms
Afhverju er ekki góð hugmynd að setja mynd af sér í avatar?
Annars er ég líka að spá í að kaupa einn eða tvo svona til að hafa í fileserver hérna heima. Veit nokkur hvort þessir diskar bila mikið?
Sent: Mið 09. Jún 2004 19:51
af gaddavir
SolidFeather: Þetta er broskallinn minn.
gnarr: Ekki fyrir mig, ég skil ekki það sem þú varst að sýna mér.
Fallen: Já.
gnarr: er það ekki betra að vera með lægra db?
Pandemic: Þá tek ég hana bara burt, en hvernig veist þú hvort þetta er mynd af mér eða ekki.
Myndina af græjunni setti ég nú bara í ganni mínu.
IthMcMos: Við förum bara saman að kaupa græjuna. d;o) Nei, bara djóka.
Sent: Mið 09. Jún 2004 20:29
af gnarr
gaddavir skrifaði:gnarr: Ekki fyrir mig, ég skil ekki það sem þú varst að sýna mér.
Þetta benchmark sýnir að þessi diskur er einn hraðasti 7200rpm diskur í heimi. oftast um 30-50% hraðari en WD SE diskarnir.
gaddavir skrifaði:gnarr: er það ekki betra að vera með lægra db?
jú, það er einmit það sem ég var að segja. þessir diskar eru ekkert voðalega hljóðlátir (þar að segja ef við miðum við seagate eða samsung) en eru samt alveg 7-10db hljóðlátari en WD, sem eru einmit mjög háværir diskar.
ps. db er logarithmískur skali, það þýðir að 13db er tvöfalt hærra hljóð en 10db. og 16db er tvöfalt hærra en 13db og fjórfalt hærra en 10db.
Sent: Mið 09. Jún 2004 20:36
af axyne
mér finnst samsung og seagate ekkert hljótlátir
ok ég viðurkenni að það heyrist ekkert í þeim þegar tölvan idlar. bara eins og nýr WD diskur.
en þegar samsung eða seagate harðir diskar eru að vinna þá brakar og brestur í þeim eins og Köttur með bilaða hálsbólgu að mala.
en þegar WD diskur er að Vinna þá heyrst ekkert.
ég hef sjálfur átt 4 Seagate barracuda diska. 120 gb
og sett nokkrar tölvur saman samsung 80 og 120 gb
nú finnst mér að fólk sem hefur prufað nýju Fluid bearing diskana frá WD að koma með sögur. ég held þetta séu ekkert verri diskar en samsung og seagate.
Sent: Mið 09. Jún 2004 21:48
af GuðjónR
Ég er reyndar ekki sammála að Seagate sé ekkert hljóðlátari en WD...
En gaman væri að heyra af einhverjum sem á WD disk með Fluid Bearing.
Hvort það er einhver munur á þeim og þessum gömlu eða hvort þetta sé bara sölutrix.
Sent: Lau 12. Jún 2004 23:23
af SolidFeather
Hér er minn broskall: t(^_^t)

Sent: Lau 12. Jún 2004 23:33
af GuðjónR
Ég er að spá í
þennan disk. Hefur einhver reynslu af honum?
Sent: Sun 13. Jún 2004 01:43
af MezzUp
GuðjónR skrifaði:Ég er að spá í
þennan disk. Hefur einhver reynslu af honum?
ekki ég, en mér líst vel á hann
Sent: Sun 13. Jún 2004 02:54
af Cicero
GuðjónR skrifaði:Ég er að spá í
þennan disk. Hefur einhver reynslu af honum?
Þessi diskur á víst að vera rosalega fínn

Sent: Sun 13. Jún 2004 12:00
af arnarj
Var að versla einn slíkan, reyndar bara sem geymsludisk og hef ekkert nema gott um hann að segja. 2 sem ég þekki eru einnig með slíkan disk og nota hann undir stýrikerfi og eru hæstánægðir. Hraðvirkur, hljóðlátur og svo hljómar 200 gíg betur en 160
p.s. þessi diskur er svokallaður double platter, þ.e. á að vera hraðvirkari fyrir vikið.
Sent: Sun 13. Jún 2004 14:23
af MezzUp
hef alltaf sagt, og mun alltaf segja, það er lítið að marka db töluna, sérstaklega þessa frá framleiðendum. það er hægt að beina einum mic að staðnum þar sem að diskurinn er hljóðlátastur og setja þá tölu á netið. Svo getur annar sett mic'inn fyrir framan diskinn og annar fyrir aftan.......
Óháðar síður eru aðeins skárri, þar sem að sömu mæliaðferðinni er beitt á alla diska, en það getur samt gefið ranga mynd. Síðan skiptir meira máli hvernig "color" er á hljóðinu, þ.e. er það djúpt og stöðugt, eða skært og flöktandi eða......
Síðan skiptir líka máli hvernig umhverfið um diskinn er í kassanum, og hvernig umhverfi er um kassann.......
Sent: Mán 14. Jún 2004 03:12
af gaddavir
MezzUp skrifaði:Síðan skiptir meira máli hvernig "color" er á hljóðinu, þ.e. er það djúpt og stöðugt, eða skært og flöktandi eða......
Er það ekki betra ef það er djúpt og stöðugt
Sýna margar síður ,,color" er í hljóðinu

Sent: Mán 14. Jún 2004 09:00
af MezzUp
gaddavir skrifaði:MezzUp skrifaði:Síðan skiptir meira máli hvernig "color" er á hljóðinu, þ.e. er það djúpt og stöðugt, eða skært og flöktandi eða......
Er það ekki betra ef það er djúpt og stöðugt

Sýna margar síður ,,color" er í hljóðinu

júmms, oftast held ég allavega
hef rekist á einhverjar síður allavega, en ég held að eina leiðin til að finna út hvernig og hversu hátt hljóð er í hörðum diskum er að hlusta á það
Sent: Þri 15. Jún 2004 21:48
af Hlynzi
Seagate , Samsung og Maxtor tel ég vera bestu merkin í dag.
Hef heyrt um einn 160 gb samsung disk sem hefur bilað, og menn eru mjög hræddir við WD eins og er.
Sent: Fim 15. Júl 2004 12:53
af Icarus
Hlynzi skrifaði:Seagate , Samsung og Maxtor tel ég vera bestu merkin í dag.
Hef heyrt um einn 160 gb samsung disk sem hefur bilað, og menn eru mjög hræddir við WD eins og er.
lesnálin í samsung diskunum á víst að vera eitthvað bögged hefur maður heyrt og seagate er svo andskoti dýrt svo að Maxtor er málið
