Síða 1 af 1

Utanáliggjandi DVD drif- Vandamál

Sent: Þri 06. Des 2011 15:44
af Magni81
Ég er með utanáliggjandi Geisladrif (heitir bara superspeed usb 3.0) þegar ég tengi það við fartölvuna þá heyrist popup hljóðið og tölvan finnur drifið en svo dettur það út jafnjóðum og eftir það þá heyri ég popup hljóðið reglulega eins og drifið sé að detta inn og út jafnóðum.
Ég var að innstalla Office pakkanum og þegar ég tengdi drifið þá kom autorun sem ég ýtti á og það byrjaði að installast en svo hætti tölvan að lesa drifið(það semsagt datt úr) og það kom install error. Ég er búinn að reyna þetta 3svar og þetta kemur alltaf fyrir.
Einhver sem kannast við þetta????

Veit einhver hvort þetta sé tölvan sjálf eða drifið???

Og já drifið er tengt hjá mér við usb 3.0 tengið á tölvunni..

Re: Utanáliggjandi DVD drif- Vandamál

Sent: Þri 06. Des 2011 17:47
af IL2
Eina sem manni dettur í hug í fljótu bragði væri að það fengi ekki nógan straum. Búinn að tengja það við aðrar tölvur eða tengi á tölvunni?

Re: Utanáliggjandi DVD drif- Vandamál

Sent: Þri 06. Des 2011 17:54
af kubbur
farðu í power options og athugaðu hvort það sé enabled usb selective suspend setting í advanced settings

Re: Utanáliggjandi DVD drif- Vandamál

Sent: Þri 06. Des 2011 19:18
af Magni81
kubbur skrifaði:farðu í power options og athugaðu hvort það sé enabled usb selective suspend setting í advanced settings



jamm það er í lagi.

ég get ekki prófað aðra tölvu á heimilinu þar sem þær eru ekki með 3.0usb

Re: Utanáliggjandi DVD drif- Vandamál

Sent: Þri 06. Des 2011 19:32
af kubbur
fyrirgefðu ég gleymdi mér aðeins, prufaðu að setja í disabled

Re: Utanáliggjandi DVD drif- Vandamál

Sent: Þri 06. Des 2011 20:25
af Magni81
ég tengdi drifið við usb 2.0 á tölvunni og þá hékk það inni, eitthvað vesen semsagt með usb3.0