Sony vélar
Sent: Fös 04. Jún 2004 21:51
af OverClocker
Hvernig líkar mönnum Sony vélar ?
Ég er að spá í að skella mér á P12 eða P93..
Sent: Fös 04. Jún 2004 22:58
af Dannir
Er með p-92 og finnst hún snild af svona imba vél að vera.
ein besta vélin í þessum flokki
Sent: Sun 06. Jún 2004 13:27
af Manager1
Ég á Sony F717 og finnst hún bara alveg ágæt
Eini gallinn við Sony vélarnar er að þær taka yfirleytt ekkert kort nema Memorystick.
Sent: Sun 06. Jún 2004 14:55
af skipio
Ég held það sé alveg óumdeilanlegt að langbestu kaupin í flokki ódýrari stafrænna myndavéla í dag séu Canon A70, A75 og A80. Þ.e.a.s. ef við miðum við verðin í útlandinu. Ég hef ekki kynnt mér hversu dýrar/ódýrar Canon vélarnar eru í samanburði við aðrar vélar á Fróninu.
Þessar vélar eru með mjög skarpri linsu, eru vel sterkbyggðar, hraðvirkar í notkun, með góða manual-eiginleika og svo eru myndgæðin mjög góð.
Ég mæli allavega með því að þú skoðir Canon vélarnar vandlega og berir þær saman við þessar Sony vélar sem þú ert að spá í.
E.S. Það hvort að myndavél sé 3, 4 eða 5 megapixels skiptir í raun afar litlu máli heldur hafa gæði linsunnar, stærð CCD-skynjarans og hversu vel myndavélin vinnur úr hráu upplýsingunum frá CCD-skynjaranum miklu meiri áhrif á endanleg myndgæði.