Síða 1 af 1

hvernig sjónvarpskort

Sent: Fim 03. Jún 2004 01:55
af Mysingur
jæja nú er komið að því að maður fái sér sjónvarpskort
það þarf að vera með 8x8 kubbasetti og með góð myndgæði
er eitthvað að pæla í þessu http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... _KWORLD878
en er þetta gott? Hef sama og ekkert vit á þessu :oops:
Þannig að hverju mæliði með ?

Sent: Fim 03. Jún 2004 16:57
af talkabout
Fyrst verið er að tala um sjónvarpskort langar mig að henda fram annarri spurningu varðandi þau. Þarf maður að skrá það eins og sjónvarpstæki þegar maður kaupir svoleiðis, eða detta þau í gegnum eitthvert reglugerðargat? Afnotagjöld eður ei??

Sent: Fim 03. Jún 2004 17:07
af MezzUp
talkabout skrifaði:Fyrst verið er að tala um sjónvarpskort langar mig að henda fram annarri spurningu varðandi þau. Þarf maður að skrá það eins og sjónvarpstæki þegar maður kaupir svoleiðis, eða detta þau í gegnum eitthvert reglugerðargat? Afnotagjöld eður ei??

veit ekki hvort það sér "reglugerðagat", en maður þarf ekki að skrá sjónvarpskort = enginn afnotagjöld

Sent: Fim 03. Jún 2004 19:35
af axyne
ef þú tengir þig við rúv loftnet. og ert að taka á móti Rúv sjónvarpsbylgjum. og gaurarnir á bílunum taka eftir því. myndirðu öruglega þurfa að borga.

annars er ekki sjónvarp heima hjá þér ? þarft ekkert að borga 2svar. :D

Sent: Fös 04. Jún 2004 00:35
af Mysingur
svona áður en þetta berytist í einhverja afnotagjaldaumræðu eða eitthvað... nenniði þá að ráðleggja mér með hvaða sjónvarpskort ég ætti að kaupa
hvað er þetta eru engir sjónvarpskortasnillingar hérna

Sent: Mán 07. Jún 2004 18:52
af Hlynzi
k-world sem fæst uppí tölvulista virkar fínt í þetta. (með BT878 kubbasetti) og góð gæði í þokkabót. Örugglega orginal gæði barasta.

Sent: Mán 07. Jún 2004 19:40
af Mysingur
en k-world kortið í tolvuvirkni er það ekki betra, mpg 4,2,1 en í tölvulistanum er það bara með mpeg 1, 2
eða er það bara eitthvað rugl í mér

Sent: Mán 07. Jún 2004 19:48
af Hlynzi
Ég held að þetta sé nákvæmlega sama kort. Mitt heitir: VS-TV878RF
eða Xpert TV - PVR878

Sent: Mán 07. Jún 2004 19:57
af Mysingur
þá held ég að ég fái mér bara svona í tölvuvirkni því það er ódyrara þar
og þakka þer kærlega fyrir hjálpina :D

Sent: Mán 07. Jún 2004 20:30
af Hlynzi
Ekkert mál. Til þess er nú vefurinn.