Síða 1 af 1
AMD 3500+ og 3800+ örgjörvar komnir út!
Sent: Þri 01. Jún 2004 21:22
af wICE_man
Jæja, þá hafa socket 939 örgjörvarnir frá AMD litið dagsins ljós og fyrstu greinarnar um þá komnar á netið.
Tomshardware er með góða samantekt eins og endranær:
http://www.tomshardware.com/cpu/20040601/index.html
Aðrir eru einnig með umfjallanir eins og Anandtech, xbitlabs, techreport og fleiri stöðum.
Flestir eru á því að AMD hafi undirstrikað forystu sína á örgjörva markaðnum með þessu en við eigum enn eftir að sjá hvaða svar Intel menn eiga við þessu. Vonandi fáum við að sjá það fljótlega.
Sent: Þri 01. Jún 2004 21:25
af ErectuZ
Sent: Þri 01. Jún 2004 21:29
af wICE_man
Jæja íslenskufræðingar, skrifar maður forista, forysta eða forusta?
Sent: Þri 01. Jún 2004 22:22
af gumol
Það má vera bæði forysta og forusta en ekki forista
Held sammt að forusta sé algengara
Sent: Þri 01. Jún 2004 22:49
af CraZy
ég mundi segja forusta
Sent: Þri 01. Jún 2004 23:28
af elv
Em hefði kannski átt að minnast á það í titlinum að þetta væri AMD 64

Sent: Mið 02. Jún 2004 15:12
af Stebbi_Johannsson
hvað á eitt svona stykki eftir að kosta á Íslandi?

Sent: Mið 02. Jún 2004 15:43
af Cicero
slef mig langar í
Sent: Mið 02. Jún 2004 18:22
af wICE_man
3800+ á sennilega eftir að vera á um 80.000 fyrst um sinn en 3500+ á um 50.000, semsagt rándýrt!
Eru AMD menn að skjóta sig í fótinn með svona hárri verðlagningu? Mér skilst reyndar að þeir muni ekki framleiða nema 50.000 stykki á þessum ársfjórðung svo að þeir vilja greinilega fá sem mest út úr þeim

Sent: Mið 02. Jún 2004 19:35
af CraZy
afsakið fáfræðina en.. 3500+ og 3800+ ?? er það 3,5 og 3,8 ghz?
es. ekki skjóta mig

Sent: Mið 02. Jún 2004 19:56
af elv
Nei , 3800+ er að keyra á 2400 minnir mig..þetta er svona samaburðar tölur við Intel...
Svo fólk sjái ekki bara Intel P4 3,4 Ghz EE VS AMD 64 2400Ghz
Sent: Mið 02. Jún 2004 21:52
af gumol
Það er sammt ekki hægt að fara eftir þessu afþví sumir AMD örrarnir hafa (algjörlega óvart) fengið of hátt nafn.
Sent: Mið 02. Jún 2004 22:06
af wICE_man
Þú verður að skoða staðreyndirnar sjálfur til að fá rétta mynd af málunum, yfir heildina litið eru tölur AMD nokkuð sanngjarnar fyrir Athlon64 örrana og AthlonXP undir 2800+ en í vissum flokkum eru þær of háar á meðan að í öðrum eru þær of lágar.
Það á semsagt ekki að fara alfarið eftir PR (performance rating), en það á alls ekki að fara eftir GHz tölunni þegar ólíkar örgjörvategundir eru bornar saman.
Sent: Fim 03. Jún 2004 08:54
af Buddy
Ég held að AMD64 hafi ekki fengið og háa PR til þessa. Gömlu XP voru farnir að fá of hátt PR. Ef eitthvað er eru AMD64 að fá og lágt PR.
Sent: Fim 03. Jún 2004 18:57
af Hlynzi
Þetta er snilld.