Síða 1 af 1
SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 00:04
af MarsVolta
Sælir. Ég er með innan við 2 mánaða gamlann SSD disk. Mushkin Enhanced Callisto Deluxe, 60GB. Tölvan fraus allt í einu þegar ég var að vafra á netinu og BSOD-aði síðan stuttu eftir það. Þegar ég restarta síðan tölvunni kemur að tölvan finni ekki diskinn. Ég er búinn að prófa að skipta um Sata kapal, sata rauf, power-tengi, update-a BIOS, reseta CMOS og það er bara ómögulegt fyrir tölvuna að finna diskinn. Hann er auðvitað í ábyrgð en vildi bara fá staðfestingu frá ykkur. Er hann ekki örugglega dauður ?
(MB: Asus P8H61-m)
Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 00:07
af Klemmi
Allar líkur á biluðum disk, því miður

Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 00:08
af MarsVolta
Klemmi skrifaði:Allar líkur á biluðum disk, því miður

Allt í lagi, fínt að fá staðfestingu

.
Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 01:11
af Pandemic
Gerðist það sama við mig á alveg eins disk. Diskurinn er dauður.
Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 03:13
af RazerLycoz
ojj þetta gerðist lika fyrir mig fyrir tveimur/þrem vikur siðan þannig fór ég bara með gamla diskinn þar sem ég keypti og þeir létu mig bara fá nýjan disk

Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 07:31
af Hvati
Gerðist með Vertex 2 diskinn minn fyrir nokkrum mánuðum, ég fékk bara replacement frá búðinni.
Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 09:54
af MarsVolta
Þessi diskur var keyptur frá buy.is. Ég er búinn að hafa samband við þá. Skiljanlega þarf ég að bíða eftir því að verkstæðið hjá þeim sé búið að bilanagreina diskinn, en ég þarf líka að bíða eftir því að diskurinn verði sendur út og skiptur út af Mushkin fyrirtækinu sjálfu. Rosalega sé ég eftir því að hafa verslað við þetta fyrirtæki, en það kemur ekki fyrir aftur. Fáranlegt að láta fólk sem var að versla nýja tölvu bíða í margar vikur eftir einhverju svona kjaftæði.
Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 09:58
af appel
Algengt með SSD? Mér finnst ég aldrei lenda í HDD vandamálum.
Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 10:27
af Halli25
appel skrifaði:Algengt með SSD? Mér finnst ég aldrei lenda í HDD vandamálum.
Talandi um að Jinxa sig á versta tíma, alla vega SSD eru ekki að hækka.
@OP hryllilegt að heyra en svona er bara ef menn ætla að keyra á lágum verðum þá verður þjónustan í lágmarki..
Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 11:03
af Moldvarpan
MarsVolta skrifaði:Þessi diskur var keyptur frá buy.is. Ég er búinn að hafa samband við þá. Skiljanlega þarf ég að bíða eftir því að verkstæðið hjá þeim sé búið að bilanagreina diskinn, en ég þarf líka að bíða eftir því að diskurinn verði sendur út og skiptur út af Mushkin fyrirtækinu sjálfu. Rosalega sé ég eftir því að hafa verslað við þetta fyrirtæki, en það kemur ekki fyrir aftur. Fáranlegt að láta fólk sem var að versla nýja tölvu bíða í margar vikur eftir einhverju svona kjaftæði.
Vá hvað ég vorkenni þér að þurfa að bíða í 3+ vikur eftir að fá þetta bætt.
Eina sem ég "þorði" að kaupa af buy.is var tölvukassinn, það er mjög ólíklegt að kassinn sem slíkur bili.
Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 11:10
af Klemmi
MarsVolta skrifaði:Þessi diskur var keyptur frá buy.is. Ég er búinn að hafa samband við þá. Skiljanlega þarf ég að bíða eftir því að verkstæðið hjá þeim sé búið að bilanagreina diskinn, en ég þarf líka að bíða eftir því að diskurinn verði sendur út og skiptur út af Mushkin fyrirtækinu sjálfu. Rosalega sé ég eftir því að hafa verslað við þetta fyrirtæki, en það kemur ekki fyrir aftur. Fáranlegt að láta fólk sem var að versla nýja tölvu bíða í margar vikur eftir einhverju svona kjaftæði.
Neimm, þú þarft ekki að bíða..... Samkvæmt lögum um neytendarétt áttu rétt á sambærilegri lánsvöru ef þú missir afnot af hlutnum í lengur en 1. viku vegna galla.
Ég myndi bara nýta mér þann rétt og fara fram á lánsdisk, kæmi líklega betur út fyrir þá að panta einfaldlega sambærilegan disk fyrir þig og skipta honum út

Re: SSD diskurinn dauður ?
Sent: Þri 01. Nóv 2011 16:45
af littli-Jake
Klemmi skrifaði:MarsVolta skrifaði:Þessi diskur var keyptur frá buy.is. Ég er búinn að hafa samband við þá. Skiljanlega þarf ég að bíða eftir því að verkstæðið hjá þeim sé búið að bilanagreina diskinn, en ég þarf líka að bíða eftir því að diskurinn verði sendur út og skiptur út af Mushkin fyrirtækinu sjálfu. Rosalega sé ég eftir því að hafa verslað við þetta fyrirtæki, en það kemur ekki fyrir aftur. Fáranlegt að láta fólk sem var að versla nýja tölvu bíða í margar vikur eftir einhverju svona kjaftæði.

Áhugavert