Síða 1 af 1

Setjið saman vél fyrir 110k? áskorun

Sent: Fim 27. Maí 2004 13:20
af Stebbi_Johannsson
jæja nú er að sjá hver getur sett saman bestu vélina fyrir 110k

Sent: Fim 27. Maí 2004 13:47
af ErectuZ
Og hver ætlar að borga?

Sent: Fim 27. Maí 2004 19:01
af gumol
Hann er að meina að velja íhluti:P

Sent: Fim 27. Maí 2004 19:09
af wICE_man
Í hvernig vinnslu?

Sent: Fim 27. Maí 2004 19:13
af Stebbi_Johannsson
bara þetta venjulega... MSN, leiki, netið. Hvað getur ÞÚ sett saman góða vél? :lol:

Sent: Fim 27. Maí 2004 19:16
af gulligu
Er þetta ekki vélin sem þú notar eða? Intel P4 2.4GHz - 256mb@266MHz - 1*80gb WD 1*160gb Samsung - FX5200 128mb

Sent: Fim 27. Maí 2004 19:20
af Stebbi_Johannsson
ég er ekki að fara kaupa þetta sjálfur bara sjá hvað þið getið sett saman góða vél :P

Sent: Fim 27. Maí 2004 23:11
af wICE_man
Svona tölvu myndi ég kaupa mér:

Örri: Athlon64 3000+ hjá Start.is - 25.830Kr
móðurborð: Gigabyte GA-K8NS Pro hjá Start.is - 14.390Kr
Minni: Corsair XMS PRO 512Mb PC4000 hjá Tölvuvirkni - 18.630Kr
Skjákort: Sparkle GeForceFX 5900XT hjá Tölvuvirkni - 19.940Kr
Kassi: 6K28BS Super Low Noise 300W hjá Start.is - 6.990Kr
HDD: Samsung 160GB Serial-ATA 7200RPM hjá Start.is - 12.490Kr
DVD: NEC ND-2500A MultiSpin 8X hjá Start.is - 11.990Kr

Samtals: 110.260Kr

Svo er bara að yfirklukka og þá ættirðu að ná amk. 450 FPS í QuakeIII :)

Sent: Fös 28. Maí 2004 15:43
af surtur
AMD Athlon 64 Processor 3000+ RETAIL - þessum er ég að spá í hjá start.is á 25.830kall. Er meira vit í að kaupa 3200+ ? eða P4 og af hverju ? en hvaða móðurborði mæliði með fyrir Athlon64 3000+ ?

Sent: Fös 28. Maí 2004 15:44
af surtur
og hvað með Radeon9600 XT 256MB 18.950 ?

Sent: Fös 28. Maí 2004 15:45
af surtur
bwah fyrirgefið :) átti að fara á annann þráð þessu tvo síðustu hjá mér..

Sent: Fös 28. Maí 2004 17:09
af wICE_man
Mæli með ofangreindu móbói fyrir AMD64 örgjörva.

Mæli ekki með 9600XT 256MB, vegna þess að minnið á því er hægara og það vinnur því verr í öllum leikjum í dag en 128MB týpan.

Sent: Fös 28. Maí 2004 21:10
af Stebbi_Johannsson
það eru alltof margir sem að halda að megabitinn á skjákortum skipti höfuðmáli... Þegar að maður er að hjálpa mönnum á hugi.is með hjálp á vélbúnaði og maður bendir þeim á 9600XT 128mb kortið hjá tölvuvirkni þá er alltaf næsta svar "en það sem ég ætlaði að kaupa var 256mb"

Sent: Fös 28. Maí 2004 23:28
af Steini
Satt það ætti bara að segja þessum gaurum á huga að koma hingað og spyrja

Sent: Lau 29. Maí 2004 02:59
af nomaad
Þetta er eiginlega bara fullkominn pakki hjá Wice. 5900XT er nokkuð hraðara en 9600XT og bara örlítið dýrara, vel þess virði. 3000+ er 95% af hraða 3200+ á 80% verðsins (semsagt gott value) og því er 3200+ of dýr miðað við performance. Móðurborðið er mjög gott, góður framleiðandi + snilldar chipset.

Ég myndi bara fá mér þennan pakka :D

Sent: Lau 29. Maí 2004 03:49
af Steini
Auðvitað er þetta fullkominn pakki þetta er nú wice_man :) en hann er ekki að fara að fá sér þetta

Sent: Lau 29. Maí 2004 09:33
af wICE_man
Nei því miður, ég er svo fátækur :cry:

Verð að notast við gamla XP1700+ svolítið lengur.