Síða 1 af 1
smá hljóðkorts issue
Sent: Þri 25. Maí 2004 20:13
af GGAllin
Ég er í bölvuðu veseni. Ég er með TV kort í tölvunni þar sem ég varð að tengja snúru úr Tv kortinu í hljóðkortið á tölvunni. Svo er ég með tölvuna tengda í sjónvarp og það er að sjálfsögðu tengt í hljóðkortið í tölvunni. En þannig er mál með vexti að ég er með 5.1 surroundhátalara sem þurfa einmitt öll 3 plöggin á hljóðkortinu, og þar vandast málið. Er til hljóðkort með fleiri en 3 plöggum, eða eitthvað annað system svo ég geti tengt all draslið saman og hlustað á í gegnum hátalarana?
Sent: Sun 30. Maí 2004 14:43
af gnarr
fáðu þér bara V tengi sem splittar left right pluginu í 2 plögg.
Sent: Sun 30. Maí 2004 23:50
af ICM
úff þú af öllum að mæla með V tengi

kallast það annars ekki Y tengi ekki það að ég viti eitthvað um þetta, annað en hljóðið verður hræðilega þunnt hjá mér þegar ég nota svona splitter
Sent: Mán 31. Maí 2004 00:58
af skipio
Sammála því, þá væri nú frekar vit í að kaupa bara annað hljóðkort (þekkirðu ekki einhvern sem á gamlan SB Live?) eða þá kaupa einfaldan hljóðskipti. Fæst örugglega í t.d. Miðbæjarradíó á cirka 2k.
Sent: Mán 31. Maí 2004 01:44
af Pandemic
Það verður nú bara mono hjá Bróðir mínum

Sent: Þri 01. Jún 2004 01:20
af viddi
ég hef nú bara alldrei notað svona
