Síða 1 af 2
Nettir mp3 spilarar!
Sent: Mán 24. Maí 2004 22:51
af Voffinn
Sælir,
Ég veit það er annar þráður um mp3 spilara en ætla nú samt að gera nýjan
Ég er að hugsa um að fá mér mp3 spilara, er að hugsa um að fá mér bara lítinn, 256mb væri sennilega alveg nóg. Hverjir eru að selja þetta? Ég var að skoða MSI Megastick sem er verið að selja á nokkrum stöðum. Eða á maður ekkert að vera að kaupa þetta hérna á landi? Ég er svona nokkurn veginn alveg ráðalaus nema ég ætla ekki að eyða miklum peningi í þetta og langar ekki í nein hlunk né langar mig í ipod (ætla ekki að borga ~60kr fyrir 20gb mp3 spilara).
Hvernig spilara eigiði? Hvaða spilara langar ykkur í? Hverjir eru að selja þetta hérna á landi? Bestu kaupinn?
Ath, ég er meira að líta á hljóðgæði / batterýsendingu / útlit heldur en stærð á geymsluplássi.
Sent: Mán 24. Maí 2004 23:19
af ICM
Þetta heitir DigitalAudioPlayer ekki MP3 spilari!
Creative eru með bestu hljómgæði, margar mismunandi útfærslur á litlum spilurum og flestir með góða batterý endingu.
http://www.nomadworld.com
Þú þarft auðvitað að borga STEF gjöld af þeim sama þótt þú pantir þá sjálfur að utan en ef þú kaupir þér ódýra lófatölvu þá losnarðu auðvitað við þann fjanda.
Zen Xtra er 40 GB á 40þús í BT ef hann er ekki uppseldur, bara svona fyrst þú ert að tala um helmingi lélegari spilara sem er 20 þús. dýrari. Bara svona fyrir hina sem eru að hugsa um að fá sér DAP.
Sent: Þri 25. Maí 2004 00:03
af viddi
ég held að
þessi sé nokkuð fínn
Sent: Þri 25. Maí 2004 00:09
af ICM
sorry viddi ég hélt hann hefði sagt flottan en ekki ljótan

Sent: Þri 25. Maí 2004 17:22
af Voffinn
Er alveg hættur við að kaupa MSI Megastickið, mér líst ekkert á það. Er hinsvegar að skoða
þennan og
þennan núna. Diva Gem (sá seinni) er alveg linux compatible en þar kostar 256mb jafn mikið og 512mb í hinum og það er alveg ótrúlegt hvað það er til mikið af þessu, ég er alveg týndur.
Sent: Þri 25. Maí 2004 19:30
af Pandemic
Creative Nomad Muvo NX

Sent: Fim 27. Maí 2004 12:50
af sksig
Þar sem að þú ert að leita að hljómgæðum og rafhlöðuendingu þá mæli ég eindregið með spilara frá Rio (
http://www.riomp3.is ). En ég mæli með því að þú fáir þér t.d. Rio Nitrus, hann er með 1.5 GB í minni og er mjög "slim" og smár. Þú getur verið með hann í gallabuxnavasa án þess að taka eftir honum. Kostur við harðdisk spilara, eins og Nitrus, er sá að þú færð mikið meira geymslupláss fyrir minni pening. Ég held að ég sé að fara með rétt mál að Rio spilararnir fái betri dóma heldur en t.d. Creative varðandi hljóðgæði. Rafhlöðu ending t.d. Nitrus er 15klst á einni hleðslu, sem tekur um 2-3 klst að hlaða. Ég er ekki svo viss um að þú sérst að greiða stef gjöld af spilurunum hér heima, ef svo er þá er það óveruleg tala. Þú þarft að greiða 7,5% toll og 25% vörugjöld svo náttúrulega 24,5% VSK. Þessi gjöld legjast líka á spilara sem þú pantar að utan. En hérna heima hefur þú tveggja ára ábyrgð, sem er yfirleitt ekki boðið uppá úti. Ég er sammála Vidda að þetta eru nettir spilarar sem standa til boða á riomp3.is t.d. Ég á Nitrus og félagi minn á Karma.. En Karma tekur t.d. Ipod og stóra spilarann frá Creative í nefið, ef það er verið að miða við "sánd", rafhlöðuendingu og einfaldleika ásamt fullt af dóti sem ég nenni ekki að nefna hér. Lestu þig bara vel til áður en þú fjárfestir

Sent: Fim 27. Maí 2004 12:57
af ICM
sksig halda mætti að þú værir að vinna hjá þeim...
Allar nákvæmar kannanir sem ég hef séð varðandi hljóðgæði hafa gefið Creative hærri einkunnir en öllum hinum og er það helsti kosturinn við spilara frá þeim svo ekki segja að einhver spilari sé að taka þá í nefið varðandi "sánd" auk þess sem þeir hafa smá EAX, ekki tala heldur um stóra spilaran frá Creative þar sem það eru til margir mismunandi spilarar frá þeim og er mjög mikill munur á Zen NX og Zen Xtra t.d.
Sent: Fim 27. Maí 2004 19:45
af sksig
Ég hef reyndar ekki séð neinar tölur um sánd samanburð á þessum spilurum. En öll review sem ég hef lesið gefa Rio Karma topp einkun. Varðandi Creative spilarann... þá sagði ég "þessi stóri" af því að ég var ekki viss hvað hann héti, né að það væru til fleiri en týpa af t.d. 30GB spilara frá Creative. Ég kannaði þetta nánar og það virðist vera Zen Xtra sem er "flottastur" í þessari categoriu frá Creative. Ég rakst á tvær greinar um þá Zen og Karma. Þarna eru myndir til samanburðar og fullt af góðum upplýsingum. Gaurinn segir í greininni um Karma að hann sándi betur en Ipod og einhver spilari frá I-river, en Zen og Karma sándi á "pari", bara gott mál. Ég held að það sé misjafnt hvoran spilarann fólk myndi velja... smekksatriði. En fyrir mína parta þá myndi ég taka Karma.
Slóðirnar eru:
Zen
http://gear.ign.com/articles/442/442693 ... ?fromint=1
Karma
http://gear.ign.com/articles/456/456916p1.html
Sent: Fim 27. Maí 2004 20:23
af ICM
As is often the case with Creative portables, the Xtra sounds excellent. This is probably the best thing about the damn thing. It is extraordinarily loud and clear as could be. Like its predecessor, it boasts a 98dB SNR, which puts it at the top of the jukebox heap. There is no portable on the market that can compete with the Zen family of portables in terms of audio fidelity. All you iPod owners are tricking yourself if you think otherwise
Gætirðu kanski bent mér á hvar er sagt að Karma hljómi á "pari" við Zen?
Sent: Fim 27. Maí 2004 22:13
af sksig
Sorrý.. linkurinn á Karma review-ið var vitlaus...
http://gear.ign.com/articles/458/458401p4.html
Þetta er textinn sem ég er að tala um:
"I only listened at 2/3 volume because the headphone amp is extremely powerful. I don't exactly how powerful it is, but it is one of the most powerful I've used. Sound remains clean up to the maximum volume. Sound quality depends more on your bit rates, but with good source material the Karma really sounds excellent. It bests the iRiver and the iPod, but is about on par with the Zen."
Sent: Fös 28. Maí 2004 01:00
af skipio
sksig skrifaði:Ég hef reyndar ekki séð neinar tölur um sánd samanburð á þessum spilurum. En öll review sem ég hef lesið gefa Rio Karma topp einkun.
Ég tek öllum dómum frá tölvutímaritum um hljóðgræjur með MJÖG miklum fyrirvara enda vita tölvudúddarnir sjaldnast neitt hvað gott sound er. Margir þessir tölvustaðir eru t.d. að gefa einhverjum Creative og Logitech hátölurum frábæra dóma þótt þeir séu alger hörmung í samanburði við "alvöru" hátalara sem, nota bene, eru oft ekkert mikið dýrari en tölvuhátalarar. Sama má segja um hljóðkort og heyrnartól - sumir tölvustaðir hafa t.a.m. verið að gefa þessum Zalman heyrnartólum svaka góða einkunn þótt þau komist ekki með tærnar þar sem Sennheiser, Grado, Beyerdynamic o.fl. hafa hælana. Allavega, pointið er að flestir þessara tölv-review-staða hafa ekki hundsvit á hljóði. Með einni undantekningu þó -
http://www.digit-life.com vita um hvað þeir eru að tala.
Ég veit hinsvegar að Stereophile gaf iPod ágætis dóma og það nægir mér. Ágætar upplýsingar um MP3 spilara er örugglega að finna á hydrogenaudio.org, head-fi.org og nokkrum öðrum hljóðgræjustöðum. Svo auðvitað usenet og ecoustics.com.
Sent: Fös 28. Maí 2004 09:58
af sksig
Þarna er ég smá pínu sammála.... En mjög mikið af þessu review-um sem ég hef lesið eru bara einhverjir dúdar útí bæ, og sumir af þeim kalla sig "audiophile"...

Sent: Lau 29. Maí 2004 16:20
af Voffinn
Jájá.. rio spilarinn kostar
bara 37þús. Ég er alveg búinn að ákveða hvaða spilara ég ætla að taka
http://www.mp3players.co.uk/site/uk/diva_gem.html
Er að hugsa um að láta kaupa hann fyrir mig úti í sumar.
Sent: Mán 31. Maí 2004 17:18
af MezzUp
mér fannst langsniðugast að kaupa CD MP3 spilara, þá getur maður spilað venjulega diska líka, og limitið er bara hvað maður á marga CD-RW diska, og alveg OS-independant
Sent: Mán 31. Maí 2004 17:23
af Steini
Jæja ég er að fara til Florida eftir 2 daga og var að hugsa mér að fá mér mp3 spilara úti, hverju mæliði með sem er ekki of dýrt en samt góðum spilara (helst 256mb minni)
Sent: Mán 31. Maí 2004 17:37
af zream
Kaupa spennubreyti
Sent: Mán 31. Maí 2004 20:04
af Voffinn
MezzUp skrifaði:mér fannst langsniðugast að kaupa CD MP3 spilara, þá getur maður spilað venjulega diska líka, og limitið er bara hvað maður á marga CD-RW diska, og alveg OS-independant
Ég á þannig og það er ekki málið, bæði of stórt og er viðkvæmt fyrir hristingi.
Sent: Mán 31. Maí 2004 21:16
af MezzUp
Voffinn skrifaði:Ég á þannig og það er ekki málið, bæði of stórt og er viðkvæmt fyrir hristingi.
Well, I've got big pockets :P
Þekki ekki þessi vandamál, hefur alltaf passað í vasana mína og hef örsjaldan fundið fyrir hiksti vegna hristings :/
Sent: Mán 31. Maí 2004 21:49
af ICM
MezzUp einhverntíman farið út að hlaupa? CD spilarar eyða líka meira rafmagni en flash spilarar
Sent: Mán 31. Maí 2004 21:50
af Voffinn
Þessi sem ég var að skoða kemur með svona strapi sem fer utanum hálsinn og er með innbyggðum heyrnatólum.
Sent: Mán 31. Maí 2004 23:30
af MezzUp
IceCaveman skrifaði:MezzUp einhverntíman farið út að hlaupa? CD spilarar eyða líka meira rafmagni en flash spilarar
jamms, reyndar hef ég farið út að hlaupa, held samt ekki að það verði mikið vandamál með okkur tölvunördana hérna

Annars hleyp ég svo hratt að það tekur því ekki fyrir mig að setja á mig spilara þegar ég fer út að hlaupa
Síðan er ég með hleðslubatterý, þannig að ég mæli ennþá með CD MP3 spilurum

Sent: Mán 31. Maí 2004 23:32
af gumol
Voffinn þarf að hlaupa...út í bíl eða niður á strætóstoppistöð.
Sent: Mán 31. Maí 2004 23:41
af ICM
maður fer ekki út að hlapa til að hlaupa hratt á milli staða mezzup heldur til að halda sér í formi, þá er ekki málið að hlaupa hratt heldur lengur

Sent: Mán 31. Maí 2004 23:54
af MezzUp
IceCaveman skrifaði:maður fer ekki út að hlapa til að hlaupa hratt á milli staða mezzup heldur til að halda sér í formi, þá er ekki málið að hlaupa hratt heldur lengur

jamms, ég vonaði bara að enginn tæki eftir þessum smágalla á þaulhugsaða svarinu mínu
