Síða 1 af 1
gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Fim 06. Okt 2011 21:10
af gummih
sælr, ég var að kaupa mér uppfærslu í tölvuna mína og var að velta fyrir mér hvaða skjákort ég ætti að fá mér.
hlutirnir sem ég keipti voru:
AMD A8-3850 ASRock A75M GeIl ddr3 2133mhz 2*2Gb Scythe Katana 3 ég er svo með 300w Forton aflgjafa og einhvern 150Gb harðan disk sem ég átti en mun líklega fá nýtt um þessa helgi.
ég hef verið að skoða þetta með að nota HD 6670 og svo inbyggða HD 6550d í dual graphics ( hybrid crossfire) þannig að þau verða HD 6790D2 en svo hef ég verið að sjá að ég fengi betra FPS með því að taka eitthvað öflugra t.d. HD 6790 eða HD 6850 en er ekki viss hvort að ég geti sett það mikin pening í kort þar sem HD 6670 kostar 14.500 Kr hjá Kísildal en HD 6850 kortið er ódýrast á 26.860 Kr og ég mun ekkert endilega geta keypt það.
endilega koma með ykkar hugmyndir og dóma

-Gummi
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Fös 07. Okt 2011 00:50
af halli7
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Fös 07. Okt 2011 02:39
af Bioeight
Ég myndi taka HD6670 kortið á 14.500 kr. frá Kísildal ef þú vilt spara pening og svo kannski bara uppfæra aftur seinna. Getur þá líka leikið þér með crossfire og overclock. HD6850 yrði öflugra en það kostar líka meira, myndi líka mæla með
Gigabyte kortinu frá Tölvutækni eða
MSI kortinu frá Tölvuvirkni frekar en Club3D kortinu frá Tölvuvirkni.
Þetta er líka spurning um hvað þú þarft, hver er upplausnin á skjánum þínum? HD6850 kortið mitt er að keyra flestallt í 1920x1080 í high settings, ef þú ert með lægri upplausn á skjánum þinum þá þarftu varla svo mikið.
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Fös 07. Okt 2011 07:31
af Selurinn
Myndi taka HD6670 kortið eins og mælt var með.
HD6850 kortið er betra jú en þá væri skjástýringin ekkert að nýtast með kortinu. 6670 er besta kortið sem hægt er að nota með innibyggðu skjástýringunni.
Myndi frekar fara í 30k kort þegar þú ætlar næst að skipta um móðurborð og CPU.
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Fös 07. Okt 2011 07:52
af gummih
takk fyrir svörin

skelli mér þá á HD 6670 kortið
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Fös 07. Okt 2011 12:55
af Gunnar
áður en þú kaupir þér nýtt skjákorti þá verður þú að átta þig á að 300W aflgjafi er ekki að fara að gefa nóg power í high end kort.
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Fös 07. Okt 2011 13:54
af gummih
Gunnar skrifaði:áður en þú kaupir þér nýtt skjákorti þá verður þú að átta þig á að 300W aflgjafi er ekki að fara að gefa nóg power í high end kort.
gummih skrifaði: ég er svo með 300w Forton aflgjafa og einhvern 150Gb harðan disk sem ég átti en mun líklega fá nýtt um þessa helgi.
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Lau 08. Okt 2011 18:23
af Gunnar
gummih skrifaði:Gunnar skrifaði:áður en þú kaupir þér nýtt skjákorti þá verður þú að átta þig á að 300W aflgjafi er ekki að fara að gefa nóg power í high end kort.
gummih skrifaði: ég er svo með 300w Forton aflgjafa og einhvern 150Gb harðan disk sem ég átti en mun líklega fá nýtt um þessa helgi.
ja er að tala um að hvort þessi aflgjafi muni höndla kortið.
veistu amperin á 12V railinu?
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Lau 08. Okt 2011 22:35
af gummih
ef ég er að lesa rétt þá eru 30Amp en ég var að reyna að benda á það að ég verð kominn með nýjan betri aflgjafa áður en að ég fæ kort...
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Lau 08. Okt 2011 22:40
af Gunnar
gummih skrifaði:ef ég er að lesa rétt þá eru 30Amp en ég var að reyna að benda á það að ég verð kominn með nýjan betri aflgjafa áður en að ég fæ kort...
ahh las eins og þú værir að fá 300W aflgjafa. afsaka miskilinginn!!!
Re: gott skjákort fyrir tölvuna mína
Sent: Sun 09. Okt 2011 00:40
af gummih
jamm hlutir gerast
