Hvernig get ég breytt skjákortinu yfir í VHS? ef þið vitið kanski einhverja aðra lausn á svarthvíta vandamálinu en vitið ekki hvernig á að breyta skjákortinu yfir í VHS, megiði líka posta

Kv. Sveinn
Sveinn skrifaði:Það er bara eitt scart tengi á sjónvarpinu.
Það er stillt á PAL B.
Gaur sem ég þekki sagði mér að ég gæti þurft að breyta einhverjum ini fælum til að breyta skjákortinu úr SVHS í VHS. Veit einhver hvaða ini fælar þetta eru og hverju ég þarf að breyta.
MezzUp skrifaði:Sveinn skrifaði:Það er bara eitt scart tengi á sjónvarpinu.
Það er stillt á PAL B.
Gaur sem ég þekki sagði mér að ég gæti þurft að breyta einhverjum ini fælum til að breyta skjákortinu úr SVHS í VHS. Veit einhver hvaða ini fælar þetta eru og hverju ég þarf að breyta.
veit ekki hversu margir póstar hafa verið gerðir um þetta, er örugglega að segja þetta sama í fimmta skipti. ég lenti líka í þessu með mitt gamla Voodoo3, þá þurfti ég breyta Signal Type úr S-Video/SVHS yfir í Composite. En það held ég að sé ekki hægt lengur í driver stillingunum(var hægt í gömlu detenator minnir mig). Gæti verið að það sé verið að breyta því sama í þessari ini skrá sem þú ert að tala um, en ég veit ekki hvaða skrá það er, ertu búinn að leita á netinu??
Tyler skrifaði:Ég lenti í þessum sömu vandræðum með HP fartölvuna mína. Ég talaði við verkstæðið hjá Opnum Kerfum og þeim bentu mér á að kaupa milli stykki hjá Íhlutum. Ég gerði það og þá virkaði þetta alveg 100%. Millistykkið kostaði um 800 kr minnir mig.