800MHz minni kemur sem 400MHz ?
Sent: Fim 29. Sep 2011 20:54
af kfc
Hæ, ég var að setja tvo nýja DDR2 2x2Gb 800MHz kubba í tölvuna hjá mér. Þegar ég fer inn í CPU-Z kemur fram að minni er að keyra á 400MHz en ekki 800MHz.
Hver er ástæðan fyrir því?
Móðurborðið sem ég er með er "Asus M2N32-SLI Delux"
http://www.asus.com/Motherboards/AMD_AM2/M2N32SLI_DeluxeWireless_Edition og það stiður 800MHz
Re: 800MHz minni kemur sem 400MHz ?
Sent: Fim 29. Sep 2011 20:56
af AntiTrust
Þú ert með DDR2 minni. DDR = Double Data Rate. I/O businn hjá þér keyrir á 400mhz. Þessi 800 tala stendur ekki fyrir Mhz heldur MT/s (data rate).
Eilífur misskilningur með þetta, aðallega framleiðendum um að kenna.
Re: 800MHz minni kemur sem 400MHz ?
Sent: Fim 29. Sep 2011 21:06
af kfc
OK, þanning að þetta er allt eins og það á að vera.
Var að bæta þessu minni við. Var með tvo kubba sem eru 2x1Gb sem ég vissi ekki betur en að væru 800MHz líka en þegar ég er með þá í líka koma þeir sem 333MHz sem ég er ekki alvega að skilja.
Þegar ég googla það minni kemur að það sé DDR2 2x1Gb 800MHZ. Þetta er "Super Talent T800UX2GC5"
http://www.supertalent.com/products/product_detail.php?PN=T800UX2GC5
Re: 800MHz minni kemur sem 400MHz ?
Sent: Fim 29. Sep 2011 22:29
af rapport
Dual two wheel drive = 4WD