Síða 1 af 1
Harður diskur að crasha hjálp ASAP
Sent: Þri 27. Sep 2011 20:59
af Gúrú
Er með tvo nákvæmlega eins 1TB Samsung diska frá Buy.is stýrikerfisdiskurinn hefur alltaf verið með leiðindi en núna er hann byrjaður að gefa frá sér "takk, takk, tikk, tikk" hljóð
og tölvan crashaði áðan í frosti, svo kom "Disk Manager not found" eða eitthvað álíka við restartið og síðan náði ég að starta þessu núna en það
er alveg greinilegt á höktvinnslunni að hann er að fara að deyja á næstu klukkustundum:
Hvaða forrit er best til að nota til að mirrora bilandi diskinn yfir á hinn diskinn?
Re: Harður diskur að crasha hjálp ASAP
Sent: Þri 27. Sep 2011 21:03
af westernd
ég hata harðadiska :S ég er með disk sem er með fullt af myndum, diskurinn virkar ef ég er með hann í hýsingu en þegar ég fer að færa yfir gögn þá byrjar að færa í smástund svo bara fer flutningurinn að vera sljór og á endanum kemur error, ef ég set diskinn í turntölvu þá kemur þetta tikk tikk tikk hljóð diskurinn finnst ekki. :/
Re: Harður diskur að crasha hjálp ASAP
Sent: Þri 27. Sep 2011 21:13
af skrifbord
Hvað er :
mirrora bilandi diskinn
?
er með fimm bilaða diska sem ég þarf að ná gögnum af en veit ekki hvernig?
Re: Harður diskur að crasha hjálp ASAP
Sent: Þri 27. Sep 2011 21:15
af AntiTrust
Ég myndi ekki vera að "mirrora" diskinn þar sem file system villur geta farið með á milli. Myndi bara drepa á vélinni, ræsa upp í e-rskonar PreBoot enviroment/LiveCD og kópera manualt á milli diska. Því minni vinnsla á bilandi disk því betra.
Re: Harður diskur að crasha hjálp ASAP
Sent: Mið 28. Sep 2011 01:40
af marijuana
skrifbord skrifaði:Hvað er :
mirrora bilandi diskinn
?
er með fimm bilaða diska sem ég þarf að ná gögnum af en veit ekki hvernig?
Spegla gögn yfir á annan disk, (COPY PASTE í raun)
Re: Harður diskur að crasha hjálp ASAP
Sent: Mið 28. Sep 2011 02:00
af chaplin
Recuva
http://www.piriform.com/recuva og GetDataBack hafa bæði reynst mér ótrúlega vel
http://www.runtime.org/ og hafa náð gögnum af gjörsamlega 'nánast' handónýtum diskum.
Gangi þér vel.