Síða 1 af 4
i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 15:23
af bulldog
Það lítur út fyrir að i7 2700k komi á markaðinn 24 október. Það er talað um $350 verðmiða, hvað mynduð þið halda að hann myndi kosta hérna á klakanum þá ?
http://www.tweaktown.com/news/20856/intel_core_i7_2700k_gets_a_launch_date_and_a_big_price_tag/index.htmlMaður bíður bara eins og lítið barn eftir jólunum enda er ekki langt í 24 október en nógu langt þó

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 15:30
af Predator
Hann verður bara aðeins hærra klukkuð útgáfa af 2600k.. myndi ekki nenna að bíða eftir þessum, bara kaupa 2600k
Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 15:39
af vesley
60 og eh þús kall myndi ég giska. Ekki þess virði ef ég væri að fara að uppfæra núna.
Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 15:56
af halli7
Taktu bara I7 2600 K
Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 16:05
af Zpand3x
miðað við að i7 2600K kostar 315 $ núna og er bara á 43.900 kr í tölvutækni núna þá ætti hann ekki að þurfa að kosta meira en 50 þús

í vel völdum búðum allavega
Myndi bíða því intel eru búnir að pikka út alla góðu wafer-ana og setja í 2700K þannig þeir ættu flestir að vera fáránlega góðir overclockerar
Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 16:41
af bulldog
það verður i7 2700k og gtx 580 í vélinni þá get ég loksins farið að setja hana saman

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 16:59
af halli7
bulldog skrifaði:það verður i7 2700k og gtx 580 í vélinni þá get ég loksins farið að setja hana saman

Erttu búinn að kaupa allt sem er í undirskrift?
Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 17:09
af bulldog
já það er allt hérna heima tilbúið
Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 17:44
af vesley
bulldog skrifaði:já það er allt hérna heima tilbúið
Ég væri löngu búinn að henda bara 2600k og gtx580 ef ég væri þú

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 18:19
af mercury
las einhvernstaðar að 2700k komi í staðin fyrir 2600k
Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 18:22
af bulldog
i7 2600k er örgjörvi gærdagsins

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 18:47
af Gunnar
settir þú tölvuna saman og hvað á að nota hana í?

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 19:11
af bulldog
það er ekki búið að setja hana saman ennþá þar sem i7 2700k kemur ekki í búðir fyrr en 24 okt. Hún verður notuð í leikjaspilun og eitthvað skemmtilegt

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 20:18
af Gunnar
hva þú getur nú skellt móðurborðinu og aflgjafanum í og gengið frá snúrunum snyrtilega og gert þetta ready fyrir örran og skjákortið. og keypt þér nýtt borð í leiðinni

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 20:26
af bulldog
hvaða fleiri kosti viltu hafa í móðurborði en þessu ?
Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 20:33
af Gunnar
bulldog skrifaði:hvaða fleiri kosti viltu hafa í móðurborði en þessu ?
huh?

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 20:41
af bulldog
Úps .... misskildi aðeins .... hélt þú værir að meina móðurborð en ekki skrifborð

Það er verður fljótlega á dagskrá

Re: i7 2700k
Sent: Mán 26. Sep 2011 20:53
af Gunnar
smá
er borðið ekki inní svona horni?
mæla út, láta saga plötu sem passar akkurat og kaupa sér nokkra vinkla og byrja að skrúfa og bora!!!
Re: i7 2700k
Sent: Sun 02. Okt 2011 19:25
af vikingbay
En hvernig er það snarlækkar ekki 2600k í verði þegar þessi kemur?
Re: i7 2700k
Sent: Sun 02. Okt 2011 19:26
af MatroX
vikingbay skrifaði:En hvernig er það snarlækkar ekki 2600k í verði þegar þessi kemur?
hann á ekki eftir að lækka neitt skilst mér

Re: i7 2700k
Sent: Fös 07. Okt 2011 23:38
af bulldog
Það er talað um að verðið sé á bilinu $ 330-350 þannig að ég myndi giska gróflega 55-60.000 hingað kominn. Er ekki nokkuð til í því ?
http://www.techspot.com/news/45590-intels-core-i7-2700k-arrives-next-month-for-330-350.html
Re: i7 2700k
Sent: Mán 10. Okt 2011 16:32
af bulldog
Re: i7 2700k
Sent: Mán 10. Okt 2011 17:25
af mercury
ætla að skjóta á að hann verði frá 55-65þús fer eftir verslunum. ekki þess virði fyrir þessi 100mhz. EF hann hefur ekkert annað fram yfir 2600k.
Re: i7 2700k
Sent: Mán 10. Okt 2011 17:33
af bulldog
Ég er búinn að fá 72.000 króna verðmiðann staðfestann frá Tölvuvirkni.
Re: i7 2700k
Sent: Mán 10. Okt 2011 17:44
af MatroX
hættu núna þessu bulli og keyptu þér 2600k.
það borgar enginn heilvita maður myndi borga 72þús fyrir 1155 örgjörva. þú getur fengið næstum golden 2600k fyrir sirka 45-50þús að utan.
ég skil ekki afhverju þú ert að leitast eftir þessu þegar þú ætlar svo bara að vera með noctua kælingu þú hefur ekkert við golden chip að gera ef þú ætlar að halda þig við loft.
sandybridge e mun vera í kringum þann pening.