Síða 1 af 1

Chipset ?

Sent: Sun 16. Maí 2004 23:59
af Prankster
Daginn.
Ég var að spá í sambandi við Chipset. Getur einnhver hérna (sem veit sínu viti) frætt mig um þessa hluti, hlutverk þeirra, hvað er gott og hvernig hægt fundið er hvort ákveðið Chipset sé "öflugt" (stöðugt eða hvað sem sagt er) eða ekki.
Vonandi skiljið þið eitthvað hvað ég er að meina og komið með góð og fróðleg svör :lol: .

Kv. The Prankster

Sent: Mán 17. Maí 2004 01:47
af Arnar
ég fór á google og skrifaði: "What is chipset" og fékk: http://www.google.com/search?hl=en&lr=& ... tnG=Search
og efsti linkurinn er: Definitions of Chipset on the Web

Sem segir fullt af hlutum hehe.. skoðaðu það sjálfur.


Gott chipset ákkúrat núna.. til dæmis fyrir p4 er 875p útaf PAT minnisstillingum, möguleikar á yfirklukkun (hægt að stilla divider, læsa PCI/AGP) and so on..

Svo hefur það fullt af aukahlutum.. nokkur SATA tengi.. AGP 8X.. dual ddr.. and so on ;)

Bara býður upp á flest sem manni vantar
Þannig gott chipset býður upp á þá möguleika sem þig vantar.. ekki allir að leita af því sama
En skoðaðu bara svörin á goooooogle

Sent: Mán 17. Maí 2004 11:39
af Johnson 32
Hér er líka eitt chipset sem er mjög spennandi og með RAID og Firewall innbyggðum fídus.

Sent: Mán 17. Maí 2004 12:37
af Prankster
semsagt chipset er nokkurn veginn "fídusar" á móðurborði ? :wink: eða einsog Arnar sagði
Svo hefur það fullt af aukahlutum.. nokkur SATA tengi.. AGP 8X.. dual ddr.. and so on
:lol:

Sent: Mán 17. Maí 2004 13:04
af Stutturdreki
http://www.intel.com/design/chipsets/linecard.htm?iid=ipp_browse+chpsts_compare&

Samanburður á chipsets frá Intel.. örugglega til svipaðar síður hjá öðrum framleiðendum.

Sent: Mán 17. Maí 2004 15:06
af Arnar
chipset hefur upp á að bjóða ýmsum fídusum, þeas. ódýrari chipsettin bjóða ekki upp á eins mikið, eða eins gott, hratt og allt það og dýrari chipsettin..

Skoðaðu þetta á google

Sent: Mán 17. Maí 2004 15:18
af Bendill
http://computer.howstuffworks.com/motherboard.htm

Never fear, http://www.howstuffworks.com is here... :P

Það sem gerir móðurborð að móðurborði er þetta svokallaða chipset, eða kubbasett á íslensku :D

Í stuttu lagi þá er kubbasett samansett af tveimur "kubbum", norðurbrú og suðurbrú. Norðurbrú sér um samskipti milli örgjörva og vinnsluminnis. Suðurbrú sér um samskipti milli "aukahluta" og örgjörva ef mig minnir rétt, "aukahlutir" eru þá væntanlega PCI raufar, SATA stýringar, ATA stýringar, AGP rauf, USB og Firewire tengi...

Þetta er svona í grófum dráttum það sem þú spyrð um :P

Sent: Mán 17. Maí 2004 20:10
af so
Held að það sé smá villa hjá bendli.
Norður brúin sér um samskipti örgjörfa, vinnsluminnis og AGP raufarinnar en suðurbrúinn sér um flest annað eins og hann bendir á.
Skjákortin voru orðin vandamál á suðurbrúnni þegar þau voru PCI og var því búin til sér skjákortsrauf (AGP) sem var sett á North bridge.