Síða 1 af 1

Hljóð í rugli á borðtölvu..

Sent: Lau 17. Sep 2011 02:01
af Glazier
Er með borðtölvu (undirskrift) sem er rétt um 2 ára gömul og núna í síðustu viku fór hljóðið bara í rugl.

Ég var ekki að breyta neinu eða fikta neitt.
Hélt fyrst að heimabíóið mitt væri spurngið því hljóðið var nákvæmlega þannig (og er) það surgar um leið og það kemur einhver bassi en annars er hljóðið tært og fínt þangað til hann kemur.
Þetta er líka svona þegar ég tengi head settin mín.

Veit einhver hvað er að?
Ef ég tengi ipod við heimabíóið og spila þá virkar allt fínt (með sömu snúru og ég notað við tölvuna).

Re: Hljóð í rugli á borðtölvu..

Sent: Lau 17. Sep 2011 04:46
af ScareCrow
Er ekki bara jack tengið ónýtt?

Re: Hljóð í rugli á borðtölvu..

Sent: Lau 17. Sep 2011 06:52
af worghal
kom eitthvað högg á jack pluggið þegar það var tengt í tölvuna ?

Re: Hljóð í rugli á borðtölvu..

Sent: Lau 17. Sep 2011 11:20
af Glazier
Nei, ekkert högg.. Ekkert óvanalegt sem gerðist, er búinn að vera með heimabíóið tengt í þetta tengi í nokkra mánuði svo bamm varð þetta svona :dissed