píp sem ég veit ekki hvað er
Sent: Þri 11. Maí 2004 19:27
Daginn, var áðan að lenda í því að tölvan byrjaði að pípa (eitt lítið píp í einu) með svona 3-4 sek millibili. Vélin var í mikilli vinnslu þegar þetta var og þegar ég slökkti á öllum forritum hætti þetta. Slökkti reyndar á henni og tékkaði í hana hvort vifturnar væru örugglega ekki í gangi eða hvort hd væru nokkuð of heitir. Vifturnar reyndust allar í gangi og það diskarnir voru ekkert of heitir neitt. Volgir þegar maður kom við þá.
Nú er mér spurn hvað þetta einkennilega píp gæti verið. Ég er með gamlan AMD ef það skiptir einhverju, hitinn á honum er um 40°.
Nú er mér spurn hvað þetta einkennilega píp gæti verið. Ég er með gamlan AMD ef það skiptir einhverju, hitinn á honum er um 40°.