Síða 1 af 1

móðurborð les örgjörva vitlaust !!!

Sent: Þri 11. Maí 2004 14:42
af Gestir
Nú var ég að fá mér AMD Xp 2500 Barton kvikindi.. sem á að vera asskoti fínn örri á frábæru verði og allt í gúddí með það..

Djéskotans Windowsið hjá mér les þennan örgjörva sem AMD 1700XP.. og ég var nota bene með Xp 1800 fyrir !!!! hvað er málið... er hann samt á sama hraða og hann ætti að vera .. eða er hann að keyra á 1.47ghz í staðinn fyrir 1.88 ghz !!!!!

ég hef amk ekki Guðmund sjálfur... sé engan mun á tölvunni samt sem áður !! hún virðist ekkert vera neitt hraðari :cry:

þetta er móðurborð ´síðan 2002 MSI ULTRA 745 og mér var sagt að það ætti alveg að lesa / taka þennan xp2500 örgjörva !!

Sent: Þri 11. Maí 2004 15:03
af Arnar
uppfærðu BIOS..

eða stilltu hann sjálfur..

Hann á að vera með fsb í 166 og multiplier í 11

Sent: Þri 11. Maí 2004 15:03
af xpider
Read tha manual, þú þarft örugglega að breyta einhverjum jumperum á móðurborðinu.

Sent: Þri 11. Maí 2004 15:10
af Voffinn
Þetta kemur windowsinu ekkert við. Þú þarft að hækka fsb.

Sent: Þri 11. Maí 2004 16:44
af Hlynzi
Hækka fsb. í biosinum. (eins og voffinn segir)

ég lendi í þessu gjarnan þegar ég ríf tölvuna í tætlur og rafurmagnið fer alveg af henni.

Sent: Þri 11. Maí 2004 17:34
af Bendill
Til hamingju! Þetta er örugglega póstur númer þúsund og fimmtíu með sömu spurningunni og sama svarinu...

Það er hlekkur sem er hér fyrir ofan sem veitir þann merkilega eiginleika að leita í eldra efni, svona eins og google leitar á vefnum... :D :roll: :lol:

Sent: Þri 11. Maí 2004 18:30
af Gestir
þetta svínvirkaði.. ég reyndar fattað það sjálfur að breyta fsb úr 100 í 166.. veit ekki afhverju það var komið í 100 en what the hell

önnur spurning .. það er að flasha Bios.. er það sniðugt ? er það ekki frekar risky og hvað gæti ég hugsanlega grætt á því ??

Sent: Þri 11. Maí 2004 18:51
af Hlynzi
GimliGamli skrifaði:þetta svínvirkaði.. ég reyndar fattað það sjálfur að breyta fsb úr 100 í 166.. veit ekki afhverju það var komið í 100 en what the hell

önnur spurning .. það er að flasha Bios.. er það sniðugt ? er það ekki frekar risky og hvað gæti ég hugsanlega grætt á því ??


Þú flassar hann bara ef tölvan er eitthvað að bögga þig. Ég hef flassað bíos margoft. Passa bara að hafa réttan bios. Allavegana hef ég flassað biosinn í ferðatölvunni 4 sinnum, og nokkrum sinnum í öðrum vélum.
Það er engin brýn nauðsin að flassa biosinn. Og frekar áhættu laust. (nema þú klúðrir því, þá er meiriháttar mál að laga það)

Sent: Mið 12. Maí 2004 09:32
af gumol
Það getur oft sparað manni mikinn hausverk að vera með nýustu uppfærslur frá framleiðanda inni þegar maður er að setja nýan vélbúnað (og hubúnað) í tölvuna, svo ég mæli með því að þú uppfærir BIOS'ið ef það lagar einhver þekkt compatibility vandamál (sérð það oftast í readme filenum).

Sent: Mið 12. Maí 2004 13:57
af Gestir
Glæsilegt drengir

en þá er það eitt.. Getið þið fundið hvar í Guðmundi þetta er að finna ?

þetta er msi Ultra 745 móðurborð ( MSI 6365 held ég alveg örugglega )

ég fann ekkert bios update.. (leitaði nú samt ekki lengi)


og ég meina.. ég er búinn að uppfæra tölvuna þónokkuð eftir að ég keupti hana og bios inn er 3 ára gamall.. never been upgraded :S

Sent: Mið 12. Maí 2004 14:16
af gumol
Held að þetta sé það sem þú þarft. Farðu bara varlega og lestu vel leiðbeiningarnar.
http://www.msi.com.tw/program/support/b ... php?UID=13