Síða 1 af 1

Intel 1066mhz FSB

Sent: Þri 11. Maí 2004 12:55
af viddi
Jæja nú eru Intel menn að koma með 1066Mhz FSB á nýju P4 3,73Ghz og P4 EE 3,46Ghz örrana sína

http://www.anandtech.com/guides/showdoc.html?i=2048

Sent: Þri 11. Maí 2004 13:13
af wICE_man
Það hlaut að koma að þessu, AMD er að fara yfir í S939 með dual-channel minnisstýringu og tilheyrandi afkastaaukningu, svo að það var tímabært að Intel kæmi með mótleik. Miðað við fyrri reynslu af netburst hönnuninni þá mun þetta gefa þeim ca. 10% aukningu á afköstum, það er þó háð því að notast sé við hraðara minni en PC3200, Dual DDR@667 er auðvitað heppilegast en það er eitthvað í það að slíkt komi á markaðinn.

En þetta eru góðar fréttir, Intel hafa staðið í miklum breytingum upp á síðkastið svo að það er erfitt að spá um framhaldið, t.d. voru þeir að hætta við arftaka Prescott gjörvans, Tejas. Líklega munum við ekki sjá örgjörva mikið yfir 4GHz fyrr en í fjarlægri framtíð þar sem Intel mun nú einbeita sér að Banias afkomanda fyrir borðvélar. [/quote]

Sent: Þri 11. Maí 2004 15:15
af gumol
Það verður gaman að sjá um árámótin eða snemma á næsta ár hvernig þeim gengur með þessa dual core örgjörfa sína.

Sent: Þri 11. Maí 2004 16:46
af Hlynzi
Það þarf að fara að breyta ýmsu núna.

AMD64 móðurborðin eru mörg með 8 layera !!

Sent: Þri 11. Maí 2004 19:02
af wICE_man
Sem gerir þau dýr, en mér skilst að nýju borðin eigi eftir að vera 4-5 layers.