Síða 1 af 1

Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 17:59
af proteinsjeik
Já eins og ég tók fram þá var ég að pæla hvort það væru einhver námskeið sem kenna manni að taka í sundur og setja saman borðtölvur. Mig langar að læra það en veit bara ekkert hvar ég á að byrja. Veit að margir læra þetta bara sjálfir en ég hef ekki hæfnina í það þannig að það væri gott að geta farið á námskeið og lært á basics og svo geta farið að fikta sjálfur. Ef einhver veit hvar ég gæti lært þetta þá endilega svara mér takk fyrir.

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 18:06
af SolidFeather
Hefurðu ekki hæfnina í það? Lékstu þér með Lego þegar þú varst lítill? Þetta er alveg eins, nema þú þarft eflaust að nota skrúfjárn.

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 18:08
af blitz
Fáðu þér vél ódýrt/gefins og byrjaðu að æfa þig

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 18:18
af siggi83
Ég mæli með google eða youtube. :D

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 18:20
af Halldór
ég persónulega kunni ekki neitt á tölvur en ég fór á netið og fann mér alskonar upplysingar og mæli ég mikið með youtube. ég byrjaði að leita af svona efni fyrir nokkrum mánuðum og núna er ég búinn að setja saman 2 tölvur :megasmile

hérna eru nokkur myndbönd:
http://www.youtube.com/watch?annotation ... feature=iv
mjög gott myndband mæli með að þú horfir á það allt: http://www.youtube.com/watch?v=uUY0tP5j ... re=related

ef þú átt í einhverjum vandræðum þá er hellingur af fólki hérna á spjallinu sem er til í að hjálpa þér

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 18:26
af AntiTrust
Þetta er í hnotskurn svo afskaplega einfalt, efast um að það sé til sér námskeið í samsetningu. Hinsvegar myndi ég bara skoða CompTIA hardware námskeiðin.

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 18:31
af Glazier
Þetta er sára einfalt, eina sem er hægt að klúðra er að gleyma að tngja snúrur eða tengja þær vitlaust.. svo er smá kúnst að koma kælikreminu á en það lærist fljótt :)

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 18:59
af Haxdal
Svo má ekki gleyma því sem gleymist oft, að vera ekki að vinna á teppinu í stofunni meðan þú ert í ullarsokkum eða lopapeysu :megasmile (semsagt ekki vinna í þessu þar sem er hætta á að þú myndir stöðurafmagn)

gott trick til að afrafmagna þig er með því að snerta bert járn á tölvukassanum meðan hann er tengdur í jörð (þ.e. power snúran ennþá í spennugjafanum). Annars er varla hægt að klúðra samsetningu á íhlutum (þannig að þeir eyðileggist).. hlutir geta bara verið tengdir í það sem þeir eiga að vera tengdir í.. þú getur t.d. ekki troðið PCI-Express skjákorti í PCI rauf, ekki tengt Molex tengi vitlaust (nema þú brjótir regluna fyrir neðan) eða tengt PSUinn við móðurborðið vitlaust (nema þú brjótir regluna fyrir neðan líka) :)

Svo er þetta bara einsog með Ikea samsetningar, ef dótið passar ekki í/saman þá ertu að gera eitthvað vitlaust, aldrei að þvinga (brute forcea) hlutina eða almáttugur saga burt hluta af þeim.

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 19:54
af TraustiSig
http://www.pcityourself.com/

Þetta er klárlega síðan fyrir þig. þarna sérðu tölvuteiknað hvaða íhlutur fer hvert og hvernig þetta er gert.

Mjög sniðugt fyrir þá sem vilja læra hvernig á að setja saman vél en kunna ekki alveg grunninn ;)

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Þri 23. Ágú 2011 20:05
af zedro
TraustiSig skrifaði:http://www.pcityourself.com/

Djöf gargandi snilld er þessi síða, hefði verið fínt að hafa hana í denn þegar maður byrjaði að fikta :-"

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Mið 24. Ágú 2011 00:07
af proteinsjeik
Takk fyrir svörin!

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Fös 02. Sep 2011 23:34
af kjarribesti
Þú getur þetta alveg sjálfur, skal lofa þér því.

Mitt mottó í þessum bransa er bara að Nota aldrei kraftinn (nema með vinsluminnin :-" )

Re: Vantar upplýsingar um námskeið á tölvusamsetningum

Sent: Lau 03. Sep 2011 11:23
af Bioeight
CompTIA A+ gráðan coverar þetta, + mikið mikið meira.
http://tss.is/default.asp?page_id=554
http://www.promennt.is/is/namskeid/showScheduleItem/1090
http://www.ntv.is/?i=311

Kannski er þetta overkill, ég veit það ekki. En allaveganna þá ættirðu að vita af þessu. Sérstaklega hentugt ef þú átt inni hjá stéttarfélaginu þínu styrki sem þú hefur ekki notað eða ert á atvinnuleysisbótum því þá hefur líka verið í boði að taka þetta niðurgreitt af Vinnumálastofnun.