Síða 1 af 1

Burn inn

Sent: Sun 09. Maí 2004 01:08
af Rednex
Sælir vaktarar

Ég las einhverstaðar á netinu um burn inn eða eitthvað álíka. Það lýsir sér í því að keyra örran á hærri voltum í um 3 daga á default fsb stillingum og passar að hitinn fari ekki yfir 50¨c. Eftir þetta á maður að geta oc-a mikið meir. Er þetta eitthvað bull eða... ég nú bara spyr

Sent: Sun 09. Maí 2004 03:47
af wICE_man
Ég hef ekki heyrt um þetta, það gætu verið einhver fræði þarna á bak við, en þetta gæti líka verið sérviska einhvers.

Re: Burn inn

Sent: Sun 09. Maí 2004 08:51
af elv
Rednex skrifaði:Sælir vaktarar

Ég las einhverstaðar á netinu um burn inn eða eitthvað álíka. Það lýsir sér í því að keyra örran á hærri voltum í um 3 daga á default fsb stillingum og passar að hitinn fari ekki yfir 50¨c. Eftir þetta á maður að geta oc-a mikið meir. Er þetta eitthvað bull eða... ég nú bara spyr




Þetta er alveg rétt, byrjaði á því að menn tóku eftir að þeir gátu klukkað meira eftir að vélarnar voru búnar að keyra í nokkrar vikur....en þetta er hugsað á nýja hluti sem aldrei er búið að nota.. ef allir hlutir í vélinni þinni eru búnir að keyra í nokkrar vikur ertu ekkert að græða á þessu.
BTW þetta er líka gert með skjákort og minni

Sent: Sun 09. Maí 2004 16:44
af Rednex
Vitiði hvað er verið að tala um mikla aukningu á voltum t.d. 0.025 eða 0.2, mikill munur þar á.

Ég hef ekki mikla þekkingu á þessum efnum :oops:

Sent: Mán 10. Maí 2004 09:39
af Bendill
Ég hef ekki vitað til að þeir noti hærri volta tölu við þetta, einungis að nýjir örgjörvar skila aldrei hámarks afköstum beint úr kassanum. Hins vegar er það alþekkt að gott er að finna stöðuga yfirklukkun á nýjum örgjörva og keyra á því í einn mánuð eða svo, og þá ætti hann að vera búinn að "venjast" því :D
Ég gerði þetta á gömlu P3 örrunum mínum og þetta virkar að einhverju leyti, en þetta er ekki að færa þér auka 500Mhz í yfirklukkun, örrinn verður stöðugari undir álagi...

Sent: Mán 10. Maí 2004 13:19
af elv
Rednex skrifaði:Vitiði hvað er verið að tala um mikla aukningu á voltum t.d. 0.025 eða 0.2, mikill munur þar á.

Ég hef ekki mikla þekkingu á þessum efnum :oops:



Bara eitthvað lítið þetta er bara til að tilkeyrann aðeins