Síða 1 af 1
Vantar álit á þessu.
Sent: Lau 08. Maí 2004 18:49
af heidaro
Vinur minn er að fara að uppfæra og ég setti saman a little something fyrir hann....
att.is
Artemis SA556
Middle Tower Case 300W PSU »»» 4.950.-
K7N2 Delta-L - nForce2
400FSB, ATA133, dual channel DDR400, 6xUSB2, AGP8x, 5cPCI, netk »»» 9.850.-
Amd Athlon 2800XP Barton (2.083GHz)
0.13micron,333FSB, 640K cache, socket A »»» 11.850.-
Coolermaster Aero 7+ »»» 3.950.-
Chaintech GeForce FX5200
128MB DDR, 250Mhz Core, 400Mhz Memory, 128bit, D, T, X8 »»» 6.500.-
Sound Blaster LIVE! Player 5.1
Digital frá Creative Labs (Dolby Digital og EAX) »»» 4.650.-
Hitakrem »»» 750.-
bt.is
256MB DDR 400MHz Kingston »»» 5.999.-
start.is
Samsung 120GB ATA-133 7200rpm, 8MB cache »»» 10.200.-
(Hann á CD og floppy drif)
Alls »»» 58.699.-
Er svona aðallega að pæla hvort PSUinn sé nógu öfugur fyrir þetta, og ef þið vitið um eitthvað sem ég get skipt út fyrir eitthvað annað betra en á svipuðu verði endilega segið mér frá því...þetta átti sko að kosta 40k fyrst.

Sent: Lau 08. Maí 2004 18:54
af pyro
Í hvað á að nota vélina? hann þarf meira minni til að spila leiki, einnig myndi ég frekar mæla með GF4 Ti korti heldur en FX5200, færð betri díl þannig held ég. getur líka sparað pening með því að kaupa bara XP2500 örgjörva og annaðhvort bara yfirklukkað hann eða bara haldið honum í 2500, ætti að vera alveg nóg svosem
Sent: Lau 08. Maí 2004 18:56
af heidaro
Þetta verður notað í download, CS og svo bara svona normal notkun held ég

Sent: Lau 08. Maí 2004 19:00
af Sveinn
GF4 Ti, öðruvísi örgjörva, og ég mæli með Mushkin minni, allavega 512 eða hærra.
Sent: Lau 08. Maí 2004 19:04
af heidaro
OK ég skipti út CPU...þetta er alltaf updeitað hér
http://www.g4-hosting.net/~runespoor/Runes/gunnali
En, geturðu mælt með einhverju GF4 Ti korti?
Sent: Lau 08. Maí 2004 22:37
af Axel
Klárlega ekki góð í CS spilun.
Sent: Lau 08. Maí 2004 23:23
af SolidFeather
Ertað segja að Ti kortin se ekki goð i CS spilun?
Sent: Lau 08. Maí 2004 23:33
af gulligu
ég er að spá sjálfur í þessu móðurborði en hvernig er það að standa sig og er það ágætt í yfirklukkun?
Sent: Sun 09. Maí 2004 01:35
af gumol
siðan virkar ekki, en ég tek bara undir með hinum, alls ekki GeForce FX5200
Sent: Sun 09. Maí 2004 01:41
af heidaro
Script kiddie að ddosa g4-hosting einmitt í kvöld...
En mig vantar þá bara eitthvað skjákort undir 10k, einhverjar tillögur?
Sent: Sun 09. Maí 2004 01:56
af gumol
Radeon9600 128MB 8.800

Sent: Sun 09. Maí 2004 02:21
af heidaro
OK flott, þá held ég að þetta sé bara komið, miklar þakkir

Sent: Sun 09. Maí 2004 03:12
af fallen
Axel skrifaði:Klárlega ekki góð í CS spilun.
Ertu alveg slefandi félagi ?
Ég er með Ti 4200 og það hefur skilað mér hinum fínasta árángri hingað til.
Sent: Sun 09. Maí 2004 13:19
af gulligu
En hvað segiði um þetta móðurborð er það gott?
Sent: Sun 09. Maí 2004 15:28
af Pandemic
Ég held að Ti=Titanium kortin séu einn bestu kort sem Nvidia hefur framleitt. Mitt kort er ekkert að gefast upp og virkar vel í alla leiki.
Sent: Sun 09. Maí 2004 18:46
af Steini
Hann var væntanlega að tala að hún væri ekki góð ef hún væri með fx5200 sem er drasl

[/quote]
Sent: Sun 09. Maí 2004 20:21
af Stebbi_Johannsson
FX5200 er dauðinn!!!!

talað af reynslu...núverandi reynslu. annars ekki versla við bt nema þú viljir deyja. s.s. þegar vinur þinn kemst að því að allir íhlutirnir úr bt séu úr kóresku bollastelli.
Sent: Mán 10. Maí 2004 12:14
af wICE_man
Það er ekkert að því að kaupa FX5200 á 6500 kall, 9600 128MB kortið sem gumol vísar á er sennilega 9600SE og því
verra en FX5200.
Ýtarlegasti samanburður á skjákortum sem ég hef séð:
http://www.digit-life.com/articles2/over2003/#p3
Þar er hefðbundið FX5200 ofar en 9600SE í 11 af 13 testum!!!!
Persónulega myndi ég líka sleppa hljóðkortinu, innbyggða er alveg jafn gott og ódýr soundblaster.
Ég mæli líka með Muskhin minni, þau eru ódýr en traust.
En svona í lokin, EKKI KAUPA 9600SE!!!!
Þú munt sjá eftir því.
Sent: Mán 10. Maí 2004 12:34
af wICE_man
Ti4200 er lang bestu kaup sem hafa nokkru sinni verið til boða, þar næst kemur gamla 9500PRO en nú eru það 5900XT og 9600PRO/XT sem eru að gefa mest fyrir peninginn. GF FX5200 er samt besta ódýra skjákortið í dag þegar að allt er tekið með, það er nothæft í flestum leikjum, DX9, með svipað performance og TI4200 þegar AAx4/AFx8 stillingar eru notaðar.
Sent: Mán 10. Maí 2004 13:30
af gumol
Ef þessi vinur þinn stundar huga hefur hann líklega séð mjög mikið talað um að FX5200 kortin séu léleg. Hvort sem það er satt eða ekki gæti verið að hann yrði ánægður ef þú velur það.
Sent: Mán 10. Maí 2004 16:44
af wICE_man
Hér eru mínar ráðleggingar fyrir skjákortskaup:
5-10Þús: GF FX5200 128MB eða R9200 128MB
10-15Þús: R9600PRO
15-20þús: R9600XT 128MB eða GF FX5700
20-30Þús: GF FX5900XT
30-35Þús: R9700PRO
35-40Þús: R9800PRO
40+ Þús: R9800XT eða GF FX5900Ultra
Vonandi hjálpar þetta.
Sent: Mán 10. Maí 2004 17:53
af gumol
wICE_man: Ég var akkurat að spá í að fá mér R9600XT í sumar, er ég að fá alveg sama preformance með FX5700 ?
(Sérstaklega afþví Voffinn mælir frekar með nvidia fyrir linux)
Sent: Mán 10. Maí 2004 21:25
af wICE_man
Það er öllu jöfnu gott höfuðrými fyrir yfirklukk á 5700 kortunum (non-ultra) Það ætti að komast upp á 5700Ultra level, sem er þá að skila svipuðum afköstum og 9600XT, betri í OpenGL og DX8, kanski eilítið síðri í DX9.
Ég þekki ekki driver stuðning fyrir linux hjá skjákortum.
Sent: Mið 12. Maí 2004 10:52
af heidaro
ATI + Linux = ewww (rusl driverar)
En við ákváðum að skella okkur á Mushkin minni hjá start.is, ætlum að skoða þessi skjákort aðeins betur
