Síða 1 af 1

Breytti DVD drifi í DVD skrifara !

Sent: Fim 06. Maí 2004 14:45
af Hlynzi
Mér tókst það ómögulega. Breytti 5 þúsund króna DVD drifi í 20 þúsund króna DVD skrifara.

Svona á að gera hlutina. ;)

Sent: Fim 06. Maí 2004 14:47
af ICM
Hvernig væri að koma með smá lýsingu á þessu?

Sent: Fim 06. Maí 2004 14:55
af Hlynzi
Ég skal reyna að lýsa þessu eins ýtarlega og hægt er.

Sony DRW- U10A er upprunalega drifið, sem ég keypti mér. Upphaflegur tilgangur var bara að reddingar og DVD lesning. Svo vantaði DVD spilara, og ég kíkti á netið hvort ég fyndi nú ekki driver fyrir þetta drif, en fann ég ekki leiðbeingingar og hakkaðan flash fæl til að breyta þessu drifi í Sony DR-500A (þetta er ekki nákvæmi parturinn hjá mér, man aldrei þetta nafn)
Eftir að ég hafði flashað það með 500A dæminu, þá setti ég upp Nero 6.3.0.3 og henti DVD-RW (mínus disk ath) í vélina og lét hana brenna eitthvað drasl, og viti menn hún fór létt með það.

Hún á að geta skrifað plús diska líka, samkvæmt nero, en ég hef bara ekki prófað það ennþá.

Svo sá ég eitthvað um forrit sem á að geta skrifað með venjulegum drifum, án þess að uppfæra neitt. Veit ekki hvort að það sé á rökum reyst.

Sent: Fim 06. Maí 2004 15:00
af ICM
svona leika framleiðendur sér með markaðin

Sent: Fim 06. Maí 2004 16:22
af pyro
ehh... ertu að meina að með því að flasha firmwareið á sumum (öllum) DVD drifum geti maður búið til DVD skrifara???

Geta einhverjir aðrir staðfest þetta?? if so, þá er ég farinn út í búð :D

Sent: Fim 06. Maí 2004 17:34
af Hlynzi
pyro skrifaði:ehh... ertu að meina að með því að flasha firmwareið á sumum (öllum) DVD drifum geti maður búið til DVD skrifara???

Geta einhverjir aðrir staðfest þetta?? if so, þá er ég farinn út í búð :D


ég get nú ekki fundið neinn til að staðfesta þetta, þar sem ég virðist vera einn um þetta á klakanum. En ef þú villt sönnun máttu kíkja í heimsókn með DVD R disk ;)

Sent: Fim 06. Maí 2004 17:59
af skipio
Sneddí!

Hvar keyptir þú þetta DVD-drif og er langt síðan?

Sent: Fim 06. Maí 2004 18:04
af Hlynzi
skipio skrifaði:Sneddí!

Hvar keyptir þú þetta DVD-drif og er langt síðan?


Fyrir áramót, og það var á þessum stað sem við elskum svo margir, Tæknibær.

Í sumar ætla ég að einbeita mér að svona rugli, fara að spöglera í og læra HEX forritun, og líka eitthvað binary... og þá get ég hakkað firmware eftir þörfum..það verður stuð.

Sent: Fim 06. Maí 2004 18:46
af gnarr
enilega komdu með nákvæmt týpunúmer á skrifaranum.. ;) veistu eitthða með hraðann á þessu?

Sent: Fim 06. Maí 2004 19:09
af kiddi
Nánari upplýsingar:

http://forum.rpc1.org/viewtopic.php?t=16646

Því miður held ég að þetta drif fáist hvergi lengur... en þetta var nú ekki alveg rétt að segja að þetta færi frá 5þúsund króna drifi í 20þúsund króna drif, þú færð betri skrifara en þetta á 11-12þús nýja í dag. Varla borgar sig að standa í þessu =)