Síða 1 af 1

i5 2500K eða i7 2600K

Sent: Fim 04. Ágú 2011 13:48
af C3PO
Sælir vaktarar

Ég hef verið að skoða að uppfæra hjá mér í Sandy Bridge.
Ég er svona la la gamer en vill hafa öfluga tölvu.
ÉG hef verið að skoða uppfærsluna hjá Tölvuvirkni. Einn er með i7 2600K örgjörva (89 þús) og hinn með i5 2500 örgjörva (61 þúsund).
Er einvher munur á þessu sem er marktækur. Myndi gamer eins og ég eitthvað taka eftir hraðamun á tölvunni??

Ég spyr vegna þess að það er 30 þúsund króna munur á þessum uppfærslum.

Kv. Davíð

Re: i5 2500K eða i7 2600K

Sent: Fim 04. Ágú 2011 14:22
af ViktorS
Getur nú fengið betri minni og móðurborð á sama pening eða aðeins meira.

i5 2500 hefur ekki stafinn "K" og þá eru kjarnarnir læstir og þú getur ekki overclockað örgjörvann en á hinum er það hægt vegna stafsins "K".

Aðalmunurinn á 2500 og 2600 er samt að 2500 er aðeins með 6mb L3 flýtiminni á meðan 2600 hefur 8mb. Svo hefur 2600 hyper-threading sem virkar þannig að það eru 2 þræðir á hverjum kjarna (4 kjarnar, 8 þræðir) en á 2500 er aðeins 4 kjarnar og 4 þræðir. Hyperthreading gagnast samt mest í myndvinnslu og svoleiðis braski, en varla í tölvuleikjum.

i5 2500K
Asus P8P67-M PRO
G.Skill Ripjaws 8GB 1333mhz
= 71970 kr.
Svo er hægt að taka frekar i5 2500 ef þú ætlar ekki að overclocka.

Re: i5 2500K eða i7 2600K

Sent: Fim 04. Ágú 2011 15:26
af C3PO
Ok. Takk fyrir.
Hugsa að ég muni nú ekkert vera að overcloka en mun samt vilja hafa möguleikann.
Mér sýnist i5 2500K vera málið fyrir mig.