Síða 1 af 1

Ht ekki virkt!?

Sent: Sun 02. Maí 2004 15:54
af Snorrmund
Sælir ég er með Abit AI7 og Pentium 4 2.8ghz Northwood. Svo var ég að setja tölvuna upp núna og Hyper Threading er enablað í bios en svo virðist sem að windows finni það ekki eða eitthvað :? Ef ég fer í task manager þá sýnir það aðeins einn örgjörva en ekki tvo eins og það á að sýna ef ég væri með Ht. Veit einhver hvað er að? Er með winxp pro service pack 1

Breytt***

Ég las eitthvað í Help & Support í windows þar sem stóð að ef að vélin væri með Ht þá myndi ég sjá það í Device manager og í Computer flipanum og að ef að Ht væri virkt þá myndi standa Multiprocessor pc en það stendur bara MPS Uniprocessor pc Er eitthvað fix sem tjah, Fixar þetta

Sent: Sun 02. Maí 2004 17:20
af Pandemic
Ertu með Windows xp home edition oft er það þannig með home edition ef það er ekki með sp1 þá kemur virtual processorinn ekki fram. Búinn að uppfæra bios? Það gæti verið annað stig málsins. Ég t.d lenti í því hjá mér að það kom ekki HT merkið í boot screen fyrr en ég var búinn að uppfæra.

Sent: Sun 02. Maí 2004 18:15
af gumol
Hann er með XP Pro

Sent: Sun 02. Maí 2004 19:27
af Fletch
ertu ekki bara með Uniprocessor kernel'in inni ?

sérð það í Device manager undir computer

Stendur þá væntanlega núna "ACPI Uniprocessor PC"

breyttu því í "ACPI Multiprocessor PC"

Fletch

Sent: Sun 02. Maí 2004 19:30
af Snorrmund
jæja þetta tókst með smá sjálfstæðni :D ég fór á síðu intel og þar sá ég lista yfir það hvernig maður ætti að fá ht til að virka...

1. Enable Ht in bios
2. Install windows
3. Install Sp1
4. Install Inf drivers
5. Install drivers.

Þar sem það var ekkert mikilvægt á hddinu þá formattaði ég bara og gerði þetta og það virkaði
:) Takk samt fyrir svörin :P

Sent: Mán 03. Maí 2004 16:15
af MezzUp
sérðu það einsog 2 CPU'ar eða einsog 1 CPU með HT? Hélt að það eigi að vera það síðarnefna í XP en fyrrnefnda í Win2k

Sent: Mán 03. Maí 2004 23:08
af Snorrmund
það sjást bara 2cpuar í Windows Xp. Tveir hlið við hlið :)