Síða 1 af 1

Örgjörvi fyrir Abit KN9 SLI (Socket AM2).

Sent: Mán 11. Júl 2011 23:25
af Snikkari
Ég var að fá í hendurnar Abit KN9 SLI móðurborð með Athlon 64 X2 6000+ örgjörva og 2Gb 667mhz minni.
Mig langar að nýta mér þetta borð og minni og reyna að finna besta örgjörvan sem borðið tekur og fá mér allavega 6Gb 800mhz minni.

Spurningin er hinsvegar hvort það borgi sig að uppfæra örgjörvan.
Ég veit samt ekki alveg hvaða örgjörvi er bestur fyrir leiki og myndvinnslu af þessum lista, það væri gaman ef einhver gæti frætt mig um þetta.
Athlon X2 BE-2400 er ofar álistanum en 64 X2 6000+, spurning er hinsvegar hvort hann sé betri ?
Hér listi yfir örgjörfa sem móðurborðið tekur.

http://www.abit.com.tw/cpu-support-list ... n9-sli.htm

Re: Örgjörvi fyrir Abit KN9 SLI (Socket AM2).

Sent: Þri 12. Júl 2011 02:03
af Bioeight
Skoðaði þetta eitthvað fyrir annað móðurborð sem var á svipuðum slóðum á sínum tíma. Minnir að Athlon x2 BE-2400 örgjörvinn hafi verið aðeins öflugri en munaði ekkert svo miklu. Það virtist vera erfitt að finna eintök þannig að ég hætti að pæla í þessu, sætti mig við Athlon x2 5200+ þannig að þú ert í betri málum en ég.

Re: Örgjörvi fyrir Abit KN9 SLI (Socket AM2).

Sent: Þri 12. Júl 2011 08:45
af Snikkari
Þakka þér fyrir það, ég held mig þá bara við þetta setup.

Re: Örgjörvi fyrir Abit KN9 SLI (Socket AM2).

Sent: Þri 12. Júl 2011 09:10
af beatmaster
Fyrst að PC deild ABIT var lögð niður og enginn AM3 stuðningur við neitt frá þeim eftir því sem að ég best veit, þá ertu með einn besta örgjörvann sem að þú færð fyrir borð