Síða 1 af 1
Spurningar
Sent: Lau 01. Maí 2004 00:57
af Predator
Er hægt að keyra AMD Athlon mobile á desktop tölvu??? Ef það er hægt styður Shuttle mk35v mobile örgjörva??
Sent: Lau 01. Maí 2004 09:27
af Snorrmund
held að þessir örgjörvar keyri á sama socketi og Amd Xp þannig þetta ætti að viirka með öllum móðurborðum sem virka fyrir Amd Xp

(Leiðréttið mig ef ég er að "bulla")
Sent: Lau 01. Maí 2004 09:28
af wICE_man
Já, Athlon XP-M eru socket462/socketA svo þeir ganga í venjuleg athlon móðurborð

Sent: Lau 01. Maí 2004 09:33
af Snorrmund
Gott að hafa það á hreinu

var ekkert alveg viss

Sent: Lau 01. Maí 2004 11:41
af Predator
Ok þannig að það er hægt að vera með mobile örgjörva á móðurborðinu. En er mobile eitthvað hægvirkari en venjulegir örgjörvar??
Sent: Lau 01. Maí 2004 11:50
af GuðjónR
Hægari? nei þeir eiga ekki að vera það í fullri vinnslu, en þegar tölvan er IDLE þá trappa þeir sig niður í mhz spara orku og framleiða minni hita.
Bara snilld.
Sent: Lau 01. Maí 2004 12:01
af Predator
Þannig að ef ég er ekki að gera neitt lækkar hann klukku tíðnina til að spara orku þó að hann sé í desktop tölvu.
Sent: Lau 01. Maí 2004 12:32
af wICE_man
Það held ég ekki, móðurborðið sér yfirleitt um það en kanski er til software sem gerir það.
Sent: Lau 01. Maí 2004 15:24
af elv
wICE_man skrifaði:Það held ég ekki, móðurborðið sér yfirleitt um það en kanski er til software sem gerir það.
Það er til hugbúnaðr sem er hægt að nota til að lækka og hækka multi á Mobile XP örgjörvum of líka venjulegum XP sem er búið að tengja L5 brú saman á.Og þetta virkar á einn Palomino sem ég prófaði þetta á.EN þetta fer eftir móðurborði hvort þetta virkar eða ekki(að breyta multi) þetta virkar EKKI á Nforce kubbasettum, Via og SIS virka fínt..
http://www.cpuheat.wz.cz/html/CPUMSR_main.htm