Síða 1 af 1
Hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Sun 19. Jún 2011 20:21
af Halldór
Ég er að fara að kaupa mér nýjan CPU og nýtt móðurborð og ég er að velta því fyrir mér hvort að það sé gáfulegt að bíða eftir nýu ivy-bridge móðurborðunum? Ég var líka að spá í hvenar þau eiga að koma út?
Re: hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Sun 19. Jún 2011 20:23
af tölvukallin
október nóvember desember á þessu ári eða á næsta ári janúar
Re: hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Sun 19. Jún 2011 21:45
af mercury
eftir því sem ég best veit þá verður ivy bridge á 1155 socket. sama og sandry bridge. en sandy bridge-E verður á nýju socketi. 2011socket. ef ég man rétt.
Re: hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Sun 19. Jún 2011 21:47
af MatroX
mercury skrifaði:eftir því sem ég best veit þá verður ivy bridge á 1155 socket. sama og sandry bridge. en sandy bridge-E verður á nýju socketi. 2011socket. ef ég man rétt.
True. SB-E eru örgjörvar sem eru að fara kosta yfir 100þús. þannig að haltu þig bara við 2600k eða eitthvað.
Re: hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fös 22. Júl 2011 13:39
af bulldog
ætli að verðið á sandybridge 2600k fari þá ekki neðar en það er í dag ?
Re: hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fös 22. Júl 2011 13:43
af Eiiki
bulldog skrifaði:ætli að verðið á sandybridge 2600k fari þá ekki neðar en það er í dag ?
Nei það á aldrei eftir að lækka, ALDREI

Re: hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fös 22. Júl 2011 13:48
af MatroX
Eiiki skrifaði:bulldog skrifaði:ætli að verðið á sandybridge 2600k fari þá ekki neðar en það er í dag ?
Nei það á aldrei eftir að lækka, ALDREI

satt.
þar sem þessir SB-E örgjörvar eru socket 2011
Re: hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fös 22. Júl 2011 13:51
af Meso
Ég er í sömu sporum, ss að fara uppfæra vélina mína og hafði hugsað mér 2500k eða 2600k,
og hafði einmitt leitt hugann að því hvort ég ætti að bíða eftir Ivy bridge,
en ekki hef ég þolinmæði til að bíða fram í haust svo ég skelli mér líklegast á fyrrnefnda örgjörva,
ég ætti þá að geta uppfært í vetur ef mér svo hugnast í Ivy bridge með sama móðurborð, socket 1155?
Re: hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fös 22. Júl 2011 13:54
af MatroX
Meso skrifaði:Ég er í sömu sporum, ss að fara uppfæra vélina mína og hafði hugsað mér 2500k eða 2600k,
og hafði einmitt leitt hugann að því hvort ég ætti að bíða eftir Ivy bridge,
en ekki hef ég þolinmæði til að bíða fram í haust svo ég skelli mér líklegast á fyrrnefnda örgjörva,
ég ætti þá að geta uppfært í vetur ef mér svo hugnast í Ivy bridge með sama móðurborð, socket 1155?
jamm en það er talað um að bara high end 1155 borðinn muni fá þessa bios uppfærslu sem þarf til að keyra ivy bridge. þannig að fáðu þér eitthvað flott borð
Re: Hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fös 22. Júl 2011 17:10
af KristinnK
Til að þetta sé á hreinu:
Sandy Bridge Extreme eru high-end örgjörvar Sandy Bridge línunnar, koma einhverjir til með að kosta eins og i7 980X vel yfir hundrað þúsund krónur. Þeir munu styðja allt að quad-channel minni (a.m.k. triple-channel) og sumir vera sex kjarna. Búast má við að þeir komi seint í haust eða snemma í vetur.
Ivy Bridge er ekki nýr arkitektúr, heldur "die shrink" á Sandy Bridge. Þ.e. svipaðir örgjörvar, nema með enn fínni transistorum (22 nm í stað 32 nm). Þá er hægt að búa til öflugri örgjörva með sömu aflnotkun (eða sparneytari örgjörva með sama afli). Það er von á Ivy Bridge seint vors eða snemma sumars á næsta ári.
Þannig nema þú nennir að bíða í nokkra mánuði eftir triple channel minni skaltu bara fá þér 2500k / 2600k, eða bíða ~mánuð eftir Bulldozer

Re: Hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fös 22. Júl 2011 17:12
af AntiTrust
Var akkúrat kominn áleiðis með að skrifa þetta sem þú skrifar hér f. ofan Kristinn, mikill misskilningur í gangi - svosem ekki skrýtið, Intel ekki beint að reyna að einfalda þetta fyrir neinn.
Re: Hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fös 22. Júl 2011 18:08
af Meso
Já, ég ætla að skella mér á 2500k/2600k og láta það gott heita í bili, þakka upplýsingarnar.
Re: Hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:16
af peacerock
http://www.techpowerup.com/149241/Sandy ... rface.htmlef þið skrollið niður á commentin þá sjáið þið intel road map
Re: Hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:35
af mundivalur
Það var að koma bios uppfærsla í Gigabyte P67A-UD7-B3 bios F5 update for (22nm) og smá meira
Re: Hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Mið 03. Ágú 2011 22:36
af MatroX
mundivalur skrifaði:Það var að koma bios uppfærsla í Gigabyte P67A-UD7-B3 bios F5 update for (22nm) og smá meira
hehe orðinn spenntur?
Ivy-Bridge kemur ekki fyrr en á næsta ári þannig að þú getur róað þig aðeins:D
Re: Hvenar kemur ivy-bridge? (sandy bridgeE)
Sent: Fim 04. Ágú 2011 00:38
af mercury
mundivalur skrifaði:Það var að koma bios uppfærsla í Gigabyte P67A-UD7-B3 bios F5 update for (22nm) og smá meira
kom lika á ud3p ud4 og ud5 gigabyte eru alveg með þetta
