Síða 1 af 1

Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 17:02
af AncientGod
Sællir og sælar, ég er hérna með 2 IDE harða diska einn er 20 Gb og hinn er 40 Gb, ég ætla að hafa þann 20 Gb sem master og 40 Gb sem slave en þegar ég ætla að sitja inn jumpers verð ég ráðviltur þar sem ég skil ekki leiðbeiningarnar á 20 Gb á hvaða pinna ég á að tengja en á þeim 40 Gb stendur allt skýrt þannig ég er að spurja ykkur hvaða pinna á ég að sitja jumperinn á.


Mynd

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 17:39
af beatmaster
Stillir á "Master or single drive" = jumperinn lengst til hægri = :::[:]

Annars myndi ég prufa að hafa báða á Cable Select og athuga hvort að það virkar ekki hjá þér

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 17:43
af AncientGod
Þetta eru því miður ekki eins diskar =S einn er með 10 pinna, það er 40 Gb og sá 20 Gb er með 8 pinna, hvernig get ég gert "Master or single drive" þar sem þetta eru/verða 2 diskar ? er ekki að skilja það.

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 17:44
af beatmaster
Hvernig er hinn diskurinn?

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 17:51
af biturk
það skiptir engu máli með pinnafjöldann

settu inn myndir af pinnum af báðum diskum og leiðbeiningunum ef þú ert í vafa

en þú vilt endilega leita að cs (cable select) möguleikanum og hafa masterinn þá á endanum á kaplinum

eða finna bara slave og master í leiðbeiningunum, þær eru oft leiðinlegar viðfangs en maður áttar sig alltaf á endanum

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 17:59
af AncientGod
Hann er 40 Gb western digital IDE diskur, product nafnið á 40 Gb disknum er wd400jb-00jjco og til öruggis hér er product nafnið á 20 Gb disknum st320011a og hér eru myndir ef þær geta hjálpað eithvað.

Mynd

Mynd

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 18:07
af biturk
ruglaðist all verulega og afsakið, beatmaster er með þetta :happy

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 18:09
af jakub
Sé ekki allveg leiðbeiningar á WD disknum því að myndin er vel hrist en til að hafa þennan 20gb seagate sem master þá seturu jumperinn lengst til hægri eins og beastmaster sagði :::[:]

edit: stafsettning

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 18:09
af AncientGod
í þessum 40 Gb á að vera jumper á þessum stað því þar stendur slave og að það eigi að vera jumper.

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 18:18
af biturk
wd diskurinn á að vera eins og neðsta skýringarmyndin, ss jumperinn næst lengst til hægri

ef þú vilt hafa hann cable select þá hefur jumperinn lengst til hægri og á tenginu sem er nær móðurborðstengi á ide kaplinum, það sem er á endanum er iðulega notað fyrir master


þess má til gamans geta að ég á allavega 2 svona diska og einn 80gb og nokkra aðra wd og allir eru með eins jumper stillingar :happy

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 18:22
af AncientGod
ok flott takk, þannig ég var alltaf með WD diskin rétt ? næs og takk aftur en ég ætla að hafa styrikerfi á þeim sem er 20 gb og veit veit ekki hvað ég ætla að gera við 40 Gb diskin langaði bara að prófa að tengja þetta svona takk aftur.

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 19:56
af beatmaster
Svona þarsem að ég hef ekkert betra að gera.... :sleezyjoe


Cable Select
Mynd


Master Slave
Mynd

Ef að þú skildir vilja svissa þeim þannig þá er líka mynd hvernig sú stilling er
Mynd

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 20:00
af AncientGod
Hahahahha ég endaði við að svísa =D WD sem master og hinn sem slave hahaha, þar sem út af eithverju vildi stýrikerfið ekki vera á hinu, en ef ég myndi gara það sem þú sagðir eithvað "cable" myndi ég þá ekki þurfa að formata ?

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 20:23
af zedro
Nei

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 20:25
af AncientGod
Hvað þá ? breyta um Jumpers og ræsa vélinna ?

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 20:32
af bulldog
:face hvað eru þetta eiginlega gamlir diskar ?

Re: Master/slave

Sent: Mið 15. Jún 2011 20:50
af AncientGod
Þetta er eithvað eld gamalt, eina sem ég veit er að þetta eru 20 og 40 Gb og eru IDE diskar, IDE er eldgamlt er það ekki ? og hvað varstu að meina með þessum facepalm broskalli ?