Síða 1 af 1

BenQ EW2420 vandamál

Sent: Mið 01. Jún 2011 22:11
af íslendingur
Keypti mér BenQ EW2420 24 tommu áðan og alltaf þegar ég hreyfi músina á dökkum skjá verður hún græn, og þegar ég scrolla niður á vefsíðum breytast litirnir t.d rauður verður appelsínugulur og svo framvegis en allt í lagi meðan myndin er óhreyfð, er einhver sem á svona skjá sem hefur lent í þessu. Er að pæla hvort skjárinn sé bilaður eða hvort þetta sé bara stillingaratriði. er lokað í tölvutek svo það væri fínt ef einhver vissi einhvað um þetta.

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=23759

Ég er líka búin að prófa tengja skjáinn við aðra tölvu með annari snúru og það er sama vandamálið.

Re: BenQ EW2420 vandamál

Sent: Fim 02. Jún 2011 01:29
af Haxdal
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=21&t=34323#p301260

Preset display modein á skjánum eru alveg voðalega funky, ég er með minn á Standard og búinn að tweaka brightness/contrast/sharpness/gamma og color handvirkt og þá er hann ágætur.

Re: BenQ EW2420 vandamál

Sent: Fim 02. Jún 2011 01:49
af íslendingur
já er búin að reyna fikta í þessu líka finnst ég aldrei nógu ánægður með niðurstöðuna. Þetta er það áberandi að ég get ekki hætt að einbeita mér að þessu en þetta hlýtur að vera galli í skjánum :catgotmyballs

Re: BenQ EW2420 vandamál

Sent: Fim 02. Jún 2011 02:35
af Haxdal
Gæti alveg verið að hann sé gallaður.

Myndi allavega láta checka á því og athuga hvort þú getur fengið honum skipt ef þetta er óbærilegt fyrir þig.

Re: BenQ EW2420 vandamál

Sent: Fim 02. Jún 2011 12:29
af íslendingur
Já fer líklegast með hann á morgun takk fyrir hjálpina.

Re: BenQ EW2420 vandamál

Sent: Fös 03. Jún 2011 12:05
af eia234
Hörmulegur skjár, would not recommend :thumbsd

Ég gerði þau mistök að kaupa eitt svona stykki, maður þarf helst að hafa meistarapróf í að stilla skjái til að fá hann til að líta vel út. Mér hefur samt ekkert tekist að fá hann til að looka vel á skrifborðinu. Hann er samt sæmilegur fyrir að specca efni fyrir endan á rúminu mínu, enn hann er ekkert of góður í því heldur, finnst eins og það komi smá "ghosting".

Re: BenQ EW2420 vandamál

Sent: Fös 03. Jún 2011 12:53
af íslendingur
Er það er þessi skjár lélegur miðað við aðra skjái? Myndiru skipta honum út fyrir öðruvísi skjá ef þú gætir? ætla fara með minn í dag en veit ekki hvort ég vilji annan eins eða öðruvísi skjá, ef það er endalaust vesen á öllum svona skjáum nennir maður ekki að standa í þessu.