Síða 1 af 1

Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Þri 24. Maí 2011 22:54
af Plushy
Blessaðir.

Veit einhver um góðan míkrafónn (finnst eiginlega Míkrófónn samt passa betur) sem myndi virka vel með Skype, Ventrilo og kannski smá Teamspeak. Ég veit að ódýrir skíta mic-ar virka alveg í það en ég nota þetta mikið og vill hafa röddina í mér eins hreins og hægt er. Er búinn að vera nota innbygðann mic í headsettinu, finnst hann ekki standa sig nógu vel. Er búinn að skoða slatta af mjög t.d. mjög plain Logitech mic-um á standi en er ekki viss hvort það yrði neitt betra. Eitt annað... Hversu mikið myndi gott hljóðkort hjálpa í þessu máli?

Ef þið vitið um einhvern frábæran sem kostar ekki of mikið endilega segið mér frá.

kv.

Re: Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Þri 24. Maí 2011 23:23
af DJOli
Þessi hefur staðið sig með kostum hjá þeim sem ég hef talað við á skype, ventrilo osfv.

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 457fe1db8e

Re: Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Þri 24. Maí 2011 23:31
af MatroX
ég er að nota Mxl 990 fyrir mumble, skype etc
http://www.mxlmics.com/products/900_series/990/990.html

Re: Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Mið 25. Maí 2011 17:04
af Plushy
Einhverjir fleiri sem vilja segja sína skoðun?

Helst einhvern sem fæst á Íslandi eða ég gæti pantað hjá einhverri búð :)

Var einmitt að tala um þessa plain Logitech míkrófóna standa, veit ekki hvort þeir séu í raun og veru góður eða bara "nógu góðir"

Re: Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Mið 25. Maí 2011 17:55
af MrIce
Logitech standandi mic'arnir eru að sinna sínu, ég og flestir félagar mínir erum með þannig og skype/vent/eve voice / nefndu það er 100% clear comms

Re: Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Mið 25. Maí 2011 18:04
af braudrist
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=150

Get mælt með þessum, hann hefur virkað frábærlega fyrir mig. Heyrist skýrt og vel í honum enda er Zalman gæða merki.

Re: Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Mið 25. Maí 2011 20:20
af Danni V8
Ég og mínir vinir notum Logitech standandi mic-ana. Virka lang best, sérstaklega ef þeir eru USB tengdir. Einn sem ég tala reglulega við er með standandi mic sem er ekki frá Logitech og tengist í Mic portið í hljóðkortinu og það er alltaf eitthvað vesen með hann. Sérstaklega að hann pikkar meira upp það sem gerist fyrir aftan vin minn en það sem hann segir.

Re: Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Mið 25. Maí 2011 20:42
af Plushy
Danni V8 skrifaði:Ég og mínir vinir notum Logitech standandi mic-ana. Virka lang best, sérstaklega ef þeir eru USB tengdir. Einn sem ég tala reglulega við er með standandi mic sem er ekki frá Logitech og tengist í Mic portið í hljóðkortinu og það er alltaf eitthvað vesen með hann. Sérstaklega að hann pikkar meira upp það sem gerist fyrir aftan vin minn en það sem hann segir.


Flott, Flott. Redda þá USB Mic. Annars er ég að nota Microphone jackið framaná núna, er með innbyggt hljóðkort.

Re: Besti Míkrafónn fyrir Ventrilo/Skype

Sent: Mið 25. Maí 2011 20:49
af MrIce
:happy :happy :happy :happy :happy :happy :happy :happy :happy :happy :happy :happy :happy USB mic for the win ^^