Síða 1 af 1
Hljóðkort
Sent: Þri 20. Apr 2004 16:23
af talkabout
Er að spá í nýju hljóðkorti. Zalman að koma sér inn á markaðinn þar (
http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=847), alltaf ákveðinn plús að hafa þetta útvært plús það er auðvelt aðgengi að heyrnartólaplögginu.... annars er það annaðhvort SB Audigy Live 5.1 (
http://www.computer.is/vorur/4152) eða SB Audigy með Firewire (
http://www.computer.is/vorur/3459). Hafa menn einhverja skoðun á þessu? Það er ósköp lítið um reviews fyrir hljóðkort á netinu.
Sent: Þri 20. Apr 2004 17:11
af dreki
Nei, það er ekki mikið um reviews á netinu þar sem að Creative SB á hreinlega markaðinn! Þeim mun skemtilegra að sjá að þeir eru að fá smá samkeppni...
ertu búin að tékka á google? sló þessu inn og sá amk 2 review fyrir zalmaninn.
Sent: Þri 20. Apr 2004 17:55
af Lazylue
Mér lýst nú helvíti vel á þetta útværa hljóðkort hentar mér allavega ansi vel veit samt ekkert um gæðin á hljóðkortum.
Myndi ég heyra einhvern mun á að fjárfesta í hljóðkorti fyrir þennan pening ef ég er með þetta fyrir? -
http://www.computer.is/vorur/3092
Sent: Þri 20. Apr 2004 19:04
af talkabout
Ég er nú búinn að reyna að slá þessu inn á Google en finn engin reviews fyrir Zalmaninn. Hvað slóstu inn í leitina? Ég er búinn að reyna ýmsar samsetningar en fæ bara söluaðila

Sent: Þri 20. Apr 2004 20:16
af skipio
Aldrei sniðugt að kaupa útvær USB hljóðkort nema fyrir ferðatölvur og kannski borðtölvur ef þú spilar aldrei tölvuleiki.
Annars myndi ég miklu frekar kaupa mér M-audio útvært hljóðkort en Zalman ef ég væri að spá í svoleiðis. SONICA fæst í Tónabúðinni og kostar 8500 og er miklu betra en þetta Zalman (og Creative líka). Og þú finnur dóma um það á Netinu.
Sent: Mið 21. Apr 2004 02:18
af gnarr
ef þið eruð að spá í góðum hljómgæðum, þá fáið þið ykkur M-Audio.. PUNKTUR.
Sent: Fim 22. Apr 2004 04:57
af corflame
Humm, ég fékk mér nú bara móðurborð með innbyggðu hljóðkorti (Nforce kubbasett) svo ég gæti losnað við að fá mér CrapBlaster.
Kannski ekki hentugasta lausnin, en ég var með SB Live og þetta er miiiiklu betri hljómur. Auk þess losnaði PCI slot, ekki það að mig skorti slíkt, en aldrei að vita hvað gerist

Sent: Fim 22. Apr 2004 11:48
af MJJ
Ef þið leitið að bestu hljóðgæðunum þá skal kaupa sér TURTLE kort
Sent: Fim 22. Apr 2004 12:25
af viddi
er þetta ekki bara málið
http://www.m-audio.com/index.php?do=pro ... aa6ae2db1c
eitthvað um 15.400 kr til íslands
Sent: Fös 23. Apr 2004 02:43
af gnarr
þetta kort er á 11.900 í tónabúðinni

Sent: Fös 23. Apr 2004 10:14
af skipio
MJJ skrifaði:Ef þið leitið að bestu hljóðgæðunum þá skal kaupa sér TURTLE kort
Ekki rétt. M-Audio hafa tekið við af Turtle Beach kortunum fyrir löngu síðan sem bestu kaupin fyrir þá sem spá í hljóðgæðum.
En það er ekki þar með sagt að M-Audio Revo o.s.frv. séu best. Það eru til miklu betri hljóðkort en þau kosta bara 50k og uppúr.
Sent: Lau 24. Apr 2004 12:27
af talkabout
Jú þetta M-Audio kort (Revolution 7.1) er að fá góða dóma, nema kannski ef maður ætlar að spila leiki, þar sem það nota örgjörvann í hardware acceleration, og almennt virðist ekki vera að standa sig nógu vel í leikjum. Brilljant í tónlist og DVD en ég þarf bæði.
Hvað varðar þessi AC97 innbyggðu á nForce móðurborðunum, ég er ekki nógu sáttur við hljóðið í þeim, svona fyrir utan að það er ekki með EAX eða surround, sem er mikill mínus í minni bók. Þannig að maður endar sennilegast bara í einhverju SB fyrir einhvern 8500 kall sem er mitt budget.
Sent: Lau 24. Apr 2004 13:38
af ICM
Frekar bíðurðu með þetta í einn mánuð þar til þú færð útborgað og lætur AC97 innbygða duga heldur en að kaupa eitthvað lélegara hljóðkort bara útaf því að það er ekki þitt budget.
Sent: Lau 24. Apr 2004 15:30
af corflame
talkabout skrifaði:Hvað varðar þessi AC97 innbyggðu á nForce móðurborðunum, ég er ekki nógu sáttur við hljóðið í þeim, svona fyrir utan að það er ekki með EAX eða surround, sem er mikill mínus í minni bók. Þannig að maður endar sennilegast bara í einhverju SB fyrir einhvern 8500 kall sem er mitt budget.
Uh, mitt móðurborð (K7N2 Delta-ILSR) styður hvorutveggja. Reyndar veit ég til þess að sumar útgáfur af nForce2 er ekki með DD 5.1. Þetta sem er á mínu borði er kallað Soundstorm
http://www.nvidia.com/object/feature_soundstorm.html og mér finnst soundið mun betra í þessu heldur en í crapBlaster Live sem ég var með. En eins og alltaf þá er sound smekksatriði.
Spurning samt hvort það sé ódýrara að skipta út móðurborð heldur en að fá sér nýtt hljóðkort
Svona á öðrum nótum þá hef ég ekki heyrt gott sound í SB síðan í gamla SB AWE 32.
Gangi þér vel að velja eitthvað sem hentar bæði eyrum og buddu

Sent: Lau 24. Apr 2004 16:01
af ICM
Right corflame þetta gerir orð þín mjög trúverðug
þá hef ég ekki heyrt gott sound í SB síðan í gamla SB AWE 32.
Sent: Lau 24. Apr 2004 17:26
af Pandemic
Sent: Lau 24. Apr 2004 17:34
af corflame
IceCaveman skrifaði:Right corflame þetta gerir orð þín mjög trúverðug
þá hef ég ekki heyrt gott sound í SB síðan í gamla SB AWE 32.
Þó það sé reyndar möguleiki að minningin gerir fjöllin blá (eða hvernig sem það nú var

þá var mjög gott hljóð í því miðað við öll önnur kort sem voru á markaðnum á þeim tíma (nema "pro" kortin). Ert þú ekki að rugla því saman við AWE64 sem var mun lakara kort að mínu mati?
Sent: Lau 24. Apr 2004 17:48
af skipio
Ég á AWE32 kort sem ég borgaði um 20.000-30.000 fyrir á sínum tíma. Það var miklu verra en Live kortið sem ég keypti nokkrum árum síðar. Allt of mikið suð.
Live kortið er svo talsvert verra en Revo kortið sem ég er með núna.
Sent: Lau 24. Apr 2004 18:03
af corflame
skipio skrifaði:Ég á AWE32 kort sem ég borgaði um 20.000-30.000 fyrir á sínum tíma. Það var miklu verra en Live kortið sem ég keypti nokkrum árum síðar. Allt of mikið suð.
Live kortið er svo talsvert verra en Revo kortið sem ég er með núna.
Einmitt það sem ég var að reyna að segja, það var það skásta á
sínum tíma.
Væri líka óeðlilegt ef það væri ekki framþróun í þessu eins og öðru á tölvusviðinu.