Síða 1 af 1
Skjárinn kveikir ekki á sér
Sent: Mán 16. Maí 2011 17:00
af Fallout
Sælir, ég er með gamlann 19'' acer AL 1916 og hann var að deyja, bara svartur skjár og kveiknar ekki einusinni ljós á takkanum.
er það þess virði að gera við hann ?
Re: Skjárinn kveikir ekki á sér
Sent: Mán 16. Maí 2011 17:03
af bulldog
spurning hvort skjákortið sé farið
Re: Skjárinn kveikir ekki á sér
Sent: Mán 16. Maí 2011 17:05
af Frussi
bulldog skrifaði:spurning hvort skjákortið sé farið
Ólíklegt ef það kemur ekki einusinni ljós á takkann.
Annars var biturk að leita að ónýtum AL1916 ef þú nærð ekki að gera við hann

Re: Skjárinn kveikir ekki á sér
Sent: Mán 16. Maí 2011 18:48
af biturk
hæ.....
mig vantar svona skjá í parta

en straumbreitirinn í skjánum er líklegast farinn hjá þér og það borgar sig ekki að gera við það svona til að svara spurningunni, ekki nema þú hafir kunnáttu til þess sjálfur eða sért svo heppinn að finna það á netinu notað, í lagi og ódýrt til landsins

edit, bottomlina
ég er til í að kaupa hann af þér sem allra fyrst

Re: Skjárinn kveikir ekki á sér
Sent: Mán 16. Maí 2011 20:58
af Fallout
Já mig grunaði það, og nei ég nenni ekki að reyna að gera við hann sjálfur
ertu með einhverja verðhugmynd ?
Re: Skjárinn kveikir ekki á sér
Sent: Mán 16. Maí 2011 21:09
af biturk
já, ég er til í að borga þér 2000 fyrir hann í staðinn fyrir að hann fari í ruslið

Re: Skjárinn kveikir ekki á sér
Sent: Mán 16. Maí 2011 21:14
af Fallout
heyðu ég prófaði að kveikja á honum aftur og viti menn.. its alive !
hann á sennilega samt ekki mikið eftir, en ég ætla að halda aðeins í hann meðan ég finn mér annann
sorry bro, læt þig vita ef ég losa mig við hann fljótlega

Re: Skjárinn kveikir ekki á sér
Sent: Mán 16. Maí 2011 21:15
af biturk
Fallout skrifaði:heyðu ég prófaði að kveikja á honum aftur og viti menn.. its alive !
hann á sennilega samt ekki mikið eftir, en ég ætla að halda aðeins í hann meðan ég finn mér annann
sorry bro, læt þig vita ef ég losa mig við hann fljótlega

eins gleðilegt og þetta er fyrir þig.....þá er þetta ömurlegt fyrri mig

endilega láttu mig samt vita þegar hann deyr endanlega, mig vantar svona!
